Nýjasti liðsfélagi LeBron er búinn að vera í NBA-deildinni í átján ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. nóvember 2018 16:30 Tyson Chandler. Vísir/Getty
LeBron James og félagar í Los Angeles Lakers fengu liðsstyrk í gær þegar reynsluboltinn Tyson Chandler samdi við NBA-liðið. Tyson Chandler er 36 ára og 216 sentímetra miðherji sem hefur undanfarin ár spilað með Phoenix Suns. Chandler átti eitt ár eftir af samningi sínum við Phoenix Suns en félagið keypti samninginn upp. Chandler gaf eftir 2,1 milljón dollara af þeim 13,6 milljónum dollurum sem hann átti á fá fyrir þetta fjórða og síðasta ár sitt með Suns. Tyson Chandler var því laus allra mála og gat samið við Los Angeles Lakers. Lakers borgar honum 2,1 milljón dollara fyrir þetta tímabil samkvæmt heimildum bandarískra miðla. Chandler er á sínu átjánda tímabili í NBA-deildinni en hann varð NBA-meistari með Dallas Mavericks 2011 eftir sigur á LeBron James og félögum í Miami Heat í lokaúrslitunum.L.A. native Tyson Chandler has made a living off playing above the rim on both ends of the floor.https://t.co/544Yl3Qi74 — Los Angeles Lakers (@Lakers) November 7, 2018Tyson Chandler er frá Los Angeles og það átti mikinn þátt í því að hann ákvað að taka þátt í uppbyggingu Lakers liðsins eins og kemur fram í viðtalinu við hann hér fyrir neðan. LeBron James og Tyson Chandler voru síðast liðsfélagar á Ólympíuleikunum í London 2012 þegar þeir unnið gull með bandaríska landsliðinu. Tyson Chandler er öflugur varnarmaður en hann var kosinn besti varnarmaður NBA-deildarinnar tímabilið 2011-12. Chandler var aðeins með 3,7 stig að meðaltali í leik í þeim sjö leikjum sem hann hafði spilað með Phoenix Suns í vetur en var með 6,5 fráköst og 9,1 frákast að meðaltali á 25,0 mínútum í fyrra.“It means everything...” The LA native talks about returning home to play in front of family, and help the franchise he grew up watching. pic.twitter.com/Gl2L1jurL1 — Los Angeles Lakers (@Lakers) November 7, 2018
NBA Mest lesið Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Íslenski boltinn Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Fótbolti Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? Fótbolti „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Körfubolti „Nýtti reynsluna úr vindinum heima til að halda þolinmæði“ Golf Elín Jóna ólétt og verður ekki með á HM Handbolti Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira