Stjarnan marði Fylki eftir framlengingu Anton Ingi Leifsson skrifar 2. nóvember 2018 21:38 Stefanía átti góðan leik í kvöld. vísir/ernir
Stjarnan marði B-deildarlið Fylkis, 25-24, í Coca-Cola bikar kvenna eftir framlengdan leik en leikið var í Árbænum í kvöld. Stjarnan var einu marki yfir í leikhlé, 10-9, en eftir dramatískar lokasekúndur var niðurstaðan eftir venjulegan leiktíma 23-23. Stjarnan, sem hefur verið í miklum vandræðum í Olís-deildinni, hafði að lokum betur með einu marki, 25-24, og er því komið áfram í næstu umferð bikarsins. Stefanía Theodórsdóttir skoraði sjö mörk fyrir Stjörnuna og Elísabet Gunnarsdóttir sex. Elín Rósa Magnúsdóttir skoraði átta mörk fyrir Fylki. Annað lið sem er í vandræðum í Olís-deildinni, Selfoss, er einnig komið áfram í næstu umferð bikarsins eftir fimm marka sigur á Fjölni í Dalhúsum, 33-28. Selfoss var 19-12 yfir í hálfleik. Landsliðskonan Perla Ruth Albertsdóttir skoraði átta mörk fyrir Selfoss og Harpa Sólveig Brynjarsdóttir og Kristrún Steinþórsdóttir gerðu fimm. Elísa Ósk Viðarsdóttir gerði sex mörk fyrir Fjölni. KA/Þór, sem hefur verið að gera flotta hluti í Olís-deildinni sem nýliðar, voru þriðja lið kvöldsins til að tryggja sér sæti í næstu umferð með eins marks sigri á Aftureldingu, 26-25. Sólveig Lára Kristjánsdóttir var frábær í liði KA/Þórs og skoraði hún tólf mörk en Þóra María Sigurjónsdóttir var öflug í liði Aftureldingar með tíu mörk.
Íslenski handboltinn Mest lesið Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur Handbolti Félagið neitar að borga svo Amorim opnar veskið Enski boltinn Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn Sonur Ronaldo spilaði fyrsta landsleikinn fyrir Portúgal Fótbolti Awoniyi sofandi á gjörgæslu og gengst undir aðra aðgerð í dag Enski boltinn Sunderland sló áhorfendamet á leiðinni í úrslitaleikinn Enski boltinn Slógu toppliðið út og komust í austur úrslitin annað árið í röð Körfubolti Myndaveisla: Haukar Íslandsmeistarar eftir ótrúlegan oddaleik Körfubolti Dagskráin í dag: Úrslitaeinvígið og Benóný Breki Sport Uppgjörið: Haukar - Njarðvík 92-91 | Haukar Íslandsmeistarar 2025 Körfubolti Fleiri fréttir Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Aldís Ásta og félagar einum sigri frá sænska meistaratitlinum Alfreð reiður út í leikmenn sína Frá Eyjum til Ísraels Haukar fá einn markahæsta mann deildarinnar Lærisveinn Hannesar í tveggja ára bann fyrir hrottalegt brot Dagur líka með sína stráka á sigurbraut Uppgjörið: Bosnía-Ísland 25-34 | Toppsætið tryggt hjá strákunum okkar Alfreð kom Þjóðverjum á EM Önnur landsliðskona leysir Þóreyju Rósu af hólmi Fjalla um ráðningu Þóris: Séní sem á að hjálpa Íslandi Hópurinn gegn Bosníu: Reynir þarf að bíða eftir fyrsta landsleiknum „Þessi vegferð hefur verið draumi líkust“ Haukarnir byrjaðir að fylla í skarð Elínar Klöru Aldís Ásta frábær í fyrsta úrslitaleiknum um titilinn Haukakonur í lokaúrslitin á móti Val Bjarki kallaður inn í landsliðið Sólveig Lára hætt með ÍR Sjá meira
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn