Toppliðin í Austrinu töpuðu og Lakers steinlá í San Antonio Arnar Geir Halldórsson skrifar 8. desember 2018 09:30 Meistararnir gerðu góða ferð til Milwaukee í nótt vísir/getty
10 leikir fóru fram í NBA deildinni vestanhafs í nótt og var boðið upp á óvænt úrslit víða. LeBron James og félagar í LA Lakers steinlágu í San Antonio þar sem Spurs vann þrettán stiga sigur, 133-120. James skoraði 35 stig, tók 8 fráköst og gaf 11 stoðsendingar en DeMar DeRozan var atkvæðamestur heimamanna með 36 stig, 8 fráköst og 9 stoðsendingar. Það voru heldur betur óvænt úrslit í Brooklyn þar sem Nets bar sigurorð af Toronto Raptors með minnsta mögulega mun, 106-105 eftir framlengdan leik. D´Angelo Russell stigahæstur í liði Nets með 29 stig á meðan Kawhi Leonard skoraði 32 stig. Þetta var sjötti tapleikur Raptors á tímabilinu en þeir tróna á toppi Austurdeildarinnar. Næstefsta lið Austurdeildarinnar þurfti einnig að sætta sig við tap í nótt þar sem Milwaukee Bucks beið lægri hlut fyrir ríkjandi meisturum Golden State Warriors í stórleik næturinnar. Klay Thompson og Steph Curry stigahæstir í liði Warriors með 20 stig hvor á meðan Giannis Antetokounmpo gerði 22 stig fyrir Bucks auk þess að taka 15 fráköst.Úrslit næturinnar Charlotte Hornets 113-107 Denver Nuggets Detroit Pistons 111-117 Philadelphia 76ers Orlando Magic 90-112 Indiana Pacers Brooklyn Nets 106-105 Toronto Raptors Cleveland Cavaliers 110-129 Sacramento Kings Chicago Bulls 114-112 Oklahoma City Thunder New Orleans Pelicans 103-107 Memphis Grizzlies San Antonio Spurs 133-120 Los Angeles Lakers Phoenix Suns 98-115 Miami Heat Milwaukee Bucks 95-105 Golden State Warriors
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira