Björn Daníel laus allra mála hjá AGF Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. desember 2018 10:39 Björn Daníel í leik með AGF. vísir/getty
Björn Daníel Sverrisson er laus undan samningi sínum við AGF í Danmörku en félagið staðfesti það á heimasíðu sinni í morgun. Björn Daníel hefur verið á mála hjá AGF í tvö og hálft ár en samningurinn hans átti að renna út næsta sumar. En aðilar hafa náð samkomulagi um starfslok. „Björn hefur verið okkur tryggur liðsmaður og skoraði nokkur mikilvæg mörk í botnbaráttunni á hans fyrsta tímabili hjá okkur. Hann hefur svo alltaf verið klár þegar til hans hefur verið leitað,“ sagði Peter Christiansen, yfirmaður íþróttmála hjá AGF. Björn Daníel hefur ekki fengið mikið að spila hjá AGF síðastliðna mánuði og hann segir það ekkert leyndarmál að hann vilji spila meira. „Ég er ekkert öðruvísi en aðrir fótboltamenn og nú vil ég finna mér félag þar sem ég get spilað meira,“ sagði Björn Daníel í viðtali á heimasíðunni. Björn Daníel hefur verið orðaður við FH og Val hér á landi en Hafnfirðingar eru samkvæmt heimildum Vísis líklegastir til að semja við kappann. Hann á að baki 108 deildarleiki með FH og hefur hann skorað í þeim 32 mörk.
Fótbolti á Norðurlöndum Pepsi Max-deild karla Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira