Skoðun

Hjálpum heimilislausum

Vörður Leví Traustason skrifar
Heimilislausum og utangarðsfólki hefur fjölgað um 95% á höfuðborgarsvæðinu frá 2012. Ástandið sem hefur ríkt í málefnum þeirra hefur verið skelfilegt.

Á sínum tíma var á vegum Hjálpræðishersins opið dagsetur fyrir utangarðsfólk á Eyjaslóð. Rekstri þess var hætt í lok ágúst 2015 þegar leigusamningi var sagt upp og húsnæðið var tekið til annarra nota.

Í dag er Kaffistofa Samhjálpar opin á daginn fyrir einstaklinga sem búa við fátækt til að seðja hungur sitt og í Vin á Hverfisgötu hafa einstaklingar sótt sem treysta sér til að fara að húsreglum. Næturskýli Reykjavíkurborgar eru lokuð milli 10 og 17 og ekki nægilega mörg gistipláss til að mæta þörf yfir nóttina.

Reykjavíkurborg hefur kynnt tillögur til að bregðast við þessari stöðu. Ætlunin er að staðsetja 25 smáhýsi fyrir heimilislausa víðs vegar í borginni og láta Félagsbústaði hafa meiri fjármuni til að byggja fleiri leiguíbúðir. Auk þess er ætlunin að koma á fót nýju neyðarskýli fyrir unga heimilislausa vímuefnaneytendur í Reykjavík, sk. neyslurými í samstarfi við Rauða krossinn og ríkið. Allt skiptir máli til að takast á við þennan mikla vanda en meira verður að koma til.

Fyrr á árinu voru samþykktar tillögur Velferðarvaktarinnar um bættar aðstæður utangarðsfólks. Þar var talið mikilvægast að koma upp dagdvöl fyrir utangarðsfólk sem verði opin allan daginn. Þar væri snyrtiaðstaða og sturtur, matur, fataúthlutun, hvíldar­aðstaða, virkni og launuð verkefni, félagsráðgjöf og heilbrigðisþjónusta. Æskilegt væri að dagdvöl yrði ekki langt frá Gistiskýlinu og Konukoti.

Velferðarvaktin lagði einnig áherslu á að bæta aðgengi að meðferð við vímuefnavanda og uppræta biðlista. Koma þyrfti á fót fleiri áfangaheimilum þar sem stutt yrði við utangarðsfólk. Einnig þyrfti að tryggja aðgengi að öruggu húsnæði til lengri tíma. Útvega þyrfti atvinnutækifæri þ.e. lágþröskuldsvinnu (low threshold work) sem gæti hentað utangarðsfólki. Að lokum væri mikilvægt að stofnaður yrði formlegur starfshópur af heilbrigðisráðherra, félags- og jafnréttismálaráðherra og formanni Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem unnið yrði að ofangreindum aðgerðum í samstarfi við frjáls félagasamtök sem sinna málefnum utangarðsfólks.

Veturinn er genginn í garð, Esjan hvítnar og norðanáttin blæs ísköldum vindstrengjum yfir borgina. Mikill kvíði er meðal fólks sem veit ekki hvar sinn næsti næturstaður verður. Nú verða allir að vera tilbúnir til að vinna saman að lausn þessa brýna vanda og lýsir Samhjálp sig tilbúna til samstarfs við alla þá sem vilja gera betur og hætta að horfa í aðra átt þegar þeir mæta hinum mikla vanda sem utangarðsfólk á við að etja.

Höfundur er framkvæmdastjóri Samhjálpar.




Skoðun

Sjá meira


×