Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar 1. október 2026 14:31 Í tilefni Viku einmanaleikans, 2.-9. október 2026, skrifa ég þessar línur í sjálfvalinni einveru í landi fjarri Íslandi. Ég hef varið hér um 6 vikum árlega síðustu ár við skriftir og í fjarvinnu sem ég álít algjör forréttindi. Aldrei finn ég til einmanakenndar í einverunni enda vel ég sjálf að vera hér, meðal annars í þeim tilgangi að vökva tengslin við sjálfa mig. En einmanaleiki er einmitt tilfinning um djúpstæðan skort á nánd og innihaldsríkum tengslum við sjálfan og/eða aðra og að annað fólk hvorki hlusti á okkur né skilji. Einmanakenndin kviknar þegar við getum ekki tjáð það sem er okkur mikilvægt; kannski vegna þess að það er enginn til staðar til að hlusta, það er enginn sem hefur áhuga á því sem við viljum tjá eða það hefur enginn tíma til að hlusta. Ástæðan getur líka verið sú að við treystum ekki viðbrögðum annarra við tjáningu okkar eða að við upplifum okkur ekki tilheyra þeim hópum sem við annars ættum að finna okkur heima, eins og meðal fjölskyldu eða vina. Kvenfélagasamband Íslands stendur nú í annað sinn fyrir Viku einmanaleikans og er það mér sannur heiður að varpa ljósi á þetta mikilvæga verkefni sem hefur þann tilgang að opna umræðu um einmanaleika, upplýsa um orsakir og afleiðingar einsemdar, hvetja til aðgerða og efla samtakamátt okkar gegn einmanaleika. Einmanakenndin er ekki tilfinning sem sprettur úr tómi. Langvarandi einmanakennd á fullorðinsárum má rekja til skorts á kærleika í uppvexti, þegar þörfum okkar fyrir skilyrðislausa ást, tengsl og nánd er ekki mætt af fullorðna fólkinu sem ber ábyrgð á uppeldi okkar og umönnun[1]. Það er ekkert að okkur þegar við erum einmana, þvert á móti, það er eitthvað sem hendir okkur í lífinu sem veldur einsemdinni. Það getur verið að upplifa ástvinamissi, láta af hlutverki í lífinu eða missa heilsuna, að verða fyrir höfnun eða ganga í gegnum skilnað eða sambandsslit. Nú er mér hugsað til ungrar manneskju mér náinni, sem gekk í gegnum sambandsslit fyrir nokkrum árum. Áætlanir um framtíð sem ekki myndi verða hurfu eins og dögg fyrir sólu, lífið tók nýja og óþekkta stefnu. En sárust var höfnunin og djúpur einmanaleikinn sem fylgdi þeirri staðreynd að manneskja sem viðkomandi elskaði ákvað að halda áfram lífinu án hennar. Í allmarga daga vissi manneskjan mín ekki hvernig hún gæti tekist á við nýjan veruleika. Að upplifa félagslega ógn eins og einelti, ofbeldi af hendi annarrar manneskju eða kynferðisofbeldi veldur einnig einmanakennd. Sjálf þekki ég vel einsemdina sem orsakast af einelti á uppvaxtarárum og veit að sú tilfinning mun fylgja mér ævina á enda. Hlutfall ungs fólks, 18-34 ára, á Íslandi sem upplifa sig oft eða mjög oft einmana hefur aukist um nær helming á síðastliðnum 10 árum, voru 11,4% árið 2016 og 18,3% árið 2025. 29% framhaldsskólanema sögðust oft hafa verið einmana sl. viku sem helst í hendur við vaxandi andlega vanlíðan sama hóps en 43% þeirra meta andlega heilsu sína sæmilega eða lélega[2]. Samfélag okkar sem forgangsraðar einstaklingshyggju, samkeppni og efnislegu auðmagni umfram félagshyggju, samstöðu, samkennd og andlegu auðmagni á stóran þátt í þessari þróun. Unga fólkinu okkar sem og þeim sem eldri eru er stöðugt bent á allt sem þau skortir í stað þess að beina athyglinni að því sem þau eiga og njóta. En öll heimsins efnislegu gæði koma ekki stað þess að vera elskuð án skilyrða, séð og heyrð af manneskju sem lætur sig okkur varða. Samfélagsmiðlar hafa stóraukið tækifæri okkar til samskipta og líklega gert fjarsambönd ögn bærilegri. En auknir samskiptamöguleikar hafa komið niður á gæðum þeirra og hafa jafnvel leitt til ómælds sársauka einmana fólks sem hefur látið glepjast af sýndarást í gegnum samskipti á netinu og lent í ástarsvikum. Við þörfnumst þess nefnilega öll að það sé einhver önnur manneskja til vitnis um tilveru okkar. Manneskja sem veit hvað okkur líkar, sem veit hvað gleður okkur og hryggir, sem þekkir söguna okkar og sem er annt um okkur. Unga manneskjan mín náði hægt og bítandi vopnum sínum á ný. Hún horfðist í augu við höfnunina, leyfði sér að syrgja lífið sem ekki varð, hlúði að sér með því að hreyfa sig reglulega, gæta að mataræði, hvíld og svefni og næra tengslin við ástvini sína sem umföðmuðu hana. Hún hlúði líka að tengslum við sjálfa sig með því að velja einveru, vera ein með hugsunum sínum og finna aftur fótfestu og tilgang. Reynsla mín af einelti bernskunnar færði mér þörfina fyrir að skilja af hverju manneskjur koma fram eins og þær gera. Ég hef komist að því að meginástæðan er sú að sært fólk særir fólk. Viðbragð mitt við einsemdinni sem orsakast af eineltisreynslunni er að hlúa að tengslum við sjálfa mig og skilja áhrifin sem þessi reynsla hefur haft á viðbrögð mín og líðan samhliða því að rækta sál og líkama. Um leið hef ég skynjað og lært að þakka öll þau verðmæti sem lífið hefur fært mér. Vöxtur okkar og þroski kemur í gegnum sorg, missi, höfnun og mistök, þá þætti mannlegrar tilvistar sem eru okkur þungbærastir. Við erum samferðafólk í lífinu og eigum einmanakenndina sameiginlega af því að við fáum öll óumbeðin og sársaukafull lífsverkefni sem leiða til einsemdar. Það er hluti af mannlegri tilvist. Samhliða því að horfa inn á við og hlúa að tengslum við okkur sjálf, þá getum við sýnt viljann í verki, horft í augu hvert annars og hlustað með hjartanu, verið sjálf sá vinur sem við óskum þess að eiga og skapað verðmæti, samkennd og andlegt auðmagn meðal fólksins sem við erum svo lánsöm að mæta á lífsveginum. Höfundur er hjúkrunarfræðingur, doktorsnemi og fræðikona. [1] Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir. (2024). Einmana, tengsl og tilgangur í heimi vaxandi einsemdar. JPV. [2] Embætti landlæknis. (2026, 23. september). Lýðheilsuvísar 2026: Lifnaðarhættir og líðan. Embætti landlæknis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig tala ég við barnið mitt um netið? Skúli Bragi Geirdal skrifar Skoðun Ríkið þrengir að frelsi og samkeppni á fjölmiðlamarkaði Gísli Stefánsson skrifar Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Öll börn eru hluti af liðinu Thelma Dögg Grétarsdóttir skrifar Skoðun Heljarhestar um veturnætur Ása Hlín Benediktsdóttir skrifar Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar Skoðun Telur Samfylkingin að Mette Frederiksen sé rasisti? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Við eigum matreiðslumenn í fremstu röð Þórir Erlingsson skrifar Skoðun Verum duglegri að sjá hvert annað Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Málshraðasögur Dvalarleyfi Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Þátttaka skiptir máli – alþjóðlegur dagur iðjuþjálfunar Þóra Leósdóttir skrifar Skoðun Hugsjónasvelta Reykjavík Líf Magneudóttir ,Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Málverkið og mælikvarðinn - Um litadýrð, líffræði og fegurð Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Um Stafræna heilsu: Karp er best með forsjá Alma D. Möller skrifar Skoðun Piparsveinar fagna nýútkominni skýrslu um strandveiðar Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Sjá meira
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun
Skoðun Árangursrík stjórnsýsla – Heilsa eldri borgara – nýtum það sem virkar Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Grafið undan faglegu starfi – Skipulagsbreytingar á starfi félagsmiðstöðva frá sjónarhorni starfsmanns Ari Orrason skrifar
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson Skoðun