Segja að Arnar Þór Viðars og Eiður Smári verði kynntir í dag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2019 10:04 Eiður Smári Guðjohnsen og Arnar Þór Viðarsson (til vinstri) á dögum sínum saman í íslenska A-landsliðinu. Vísir/Getty
Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen munu taka við íslenska 21 árs landsliðinu í fótbolta samkvæmt heimildum Fótbolta.net. Knattspyrnusamband Íslands verður með blaðmannafund í dag þar sem nýtt þjálfarateymi U21 árs landsliðs karla verður kynnt. Fótbolti.net greindi frá því á dögunum að Arnar Þór og Eiður Smári væru í viðræðum við KSÍ sem gengu svo vel að þeir verða kynntir seinna í dag. Arnar Þór Viðarsson mun taka við starfi Eyjólfs Sverrissonar sem hefur þjálfað 21 árs landsliðið frá árinu 2009. Eiður Smári kemur í staðinn fyrir Tómas Inga Tómassonar. Besti árangurinn undir stjórn Eyjólfs var þegar íslenska 21 árs landsliðið komst í úrslitakeppni EM í Danmörku sumarið 2011. Þeir Arnar og Eiður voru herbergisfélagar í A-landsliðinu á sínum tíma og þekkjast því mjög vel. Arnar Þór hefur verið að þjálfa í Belgíu síðan að skórnir fóru upp á hillu bæði sem aðstoðarþjálfari og aðalþjálfari. Hann fékk tækifæri bæði hjá Cercle Brugge og Lokeren. Þetta er fyrsta þjálfarastarf Eiðs Smára en hann hefur verið að vinna sem knattspyrnusérfræðingur í sjónvarpi undanfarið.
Íslenski boltinn Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Baulað á Trump í New York Körfubolti Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Fótbolti Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Þróttarar með mikilvægan sigur á Grindvíkingum Eini grasleikurinn kom í veg fyrir markamet Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Kjánaleg hegðun og stælar sem verðskuldi rautt spjald „Eins gott að ég setti ekki Óskar á bekkinn“ „Fúlt að fara með þennan skell inn í hléið“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur á Fylki Umfjöllun og viðtöl: KR - KA 5-3 | Markaveisla á Meistaravöllum Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings „Engan bilbug á okkur að finna“ Sjá meira
Uppgjörið: Valur - Víkingur 1-5 | Sakbitinn Óskar lék við hvurn sinn fingur í glæsilegum sigri Víkings