„Það er margt rosalega jákvætt en margt sem má setja út á. Það má ekki gleyma því að liðið er rosalega ungt og það örlaði svolítið á óþolinmæði í sóknarleiknum og ákveðið reynsluleysi kannski í sóknarleiknum líka,“ sagði Sebastian.
„En við erum með eitt yngsta liðið á mótinu. Staðreyndin og „bottom line“ er einfaldlega það að við erum einu skrefi á eftir bestu liðum heims. En eftir svona tvö, þrjú ár þá verðum við klárlega í toppbaráttu segi ég.“
„Mér fannst vanta svolítið upp á þolinmæði í sóknarleiknum. Oft á tíðum var verið að taka fyrsta mögulega séns til þess að slútta sóknunum í stað þess að leita að betra tækifæri, en það er kannski í stíl við lífaldur leikmanna,“ sagði Sebastian.
Langt á milli í vörninniGuðmundur Guðmundsson er að mati sérfræðingsins einn besti þjálfari heims, en þó er Sebastian ekki alveg sammála varnarleiðunum sem Guðmundur fór í í þessum leik.
„Mér fannst rosalega langt á milli manna og set spurningamerki við hvort við eigum að vera svona rosalega framarlega. Spánverjarnir voru klókir og nýttu sér það.“

Spánverjarnir refsuðu grimmt þegar Ísland tapaði boltanum og fengum við hraðaupphlaupsmark í andlitið fyrir flesta, ef ekki alla, tapaða bolta í leiknum.
„Við erum með einhverja 11 tapaða bolta á móti 5-6, það var vitað fyrir leik að Spánverjar refsa gríðarlega vel fyrir hver mistök og þar af leiðandi hefðum við mátt vera aðeins skynsamari í sóknarleiknum. En á móti kemur að stundum er það að hlaupa heim spurning um viljamóment. Bjöggi kastaði einu sinni frábærlega fram en þeir náðu boltanum samt, að vera tilbúin að hlaupa heim.
„En þegar þú færð mark á þig í nánast hverri einustu sókn þá er erfitt að keyra hraðaupphlaup.“
Ólafur og Gísli sterkir í sókninniEn það var þó alls ekki allt neikvætt í leiknum. Hverjir stóðu upp úr að mati sérfræðingsins?
„Mér fannst Ólafur Guðmundsson góður á meðan hann spilaði, sóknarlega. Gísli Þorgeir kom inn á með mikinn kraft og ferskleika í sóknarleikinn. Erfitt að taka eitthvað út varnarlega, en mér fannst markverðirnir sleppa sómasamlega frá sínu.“

„Ég finn bara pínulítið til með þeim. Nánast undantekningarlaust þegar það kemur skot utan af velli þá þurfa þeir að verja allt markið. Þeir hafa ekkert til að vinna út frá, það er rosalega mikið af opnum færum og hrikalega erfitt að ætlast til þess að þeir detti í einhvern takt með varnarleikinn eins og hann er í dag.“
Bjöggi á að vera í stutterma„Það var gaman að sjá Bjögga, langt síðan ég hef séð hann svona sprækan. Mér finnst ég hafa „spottað“ málið, það á að banna honum að spila í síðerma peysum. Hann er núna hann sjálfur í stutterma bol. Mér finnst það geggjað.“

„Þessir tveir fyrstu leikir á móti tveimur bestu liðum heims, við erum einu skrefi á eftir en mér fannst þeir til fyrirmyndar og þeir eru þjóðinni til sóma með hvernig þeir eru að nálgast leikina.“
„Þegar þessar kynslóðir Króata og Spánverja og fleiri byrja að fara í endurnýjun þá verðum við komnir skrefinu á undan.“
Eftir þessa tvo erfiðu leiki kemur kannski samt enn erfiðara verkefni eftir minna en sólarhring. Þá mætir liðið Barein, leik sem íslenska liðið á að vinna og þarf að vinna ætli það sér áfram í mótinu. Það er annað og öðruvísi verkefni að gíra sig upp í þann leik.
„Það er ekkert mál að gíra sig í leiki á móti Króatíu og Spáni. Ég veit að Gummi er snillingur í að halda mönnum á jörðinni en nú koma þrír leikir þar sem reynir svolítið á andlegu hliðina.“
„Með frammistöðu eins og við erum búnir að sýna í fyrstu leikjunum þá eigum við að vinna næstu þrjá.“