Aðeins tæpir nítján klukkutímar í næsta leik strákanna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. janúar 2019 20:45 Arnar Freyr Arnarsson eftir aðra af tveimur brottvísunum sínum í leiknum. Getty/Carsten Harz
Ísland og Sádí Arabía eru einu landsliðin á HM í handbolta í ár sem er boðið upp á það að spila tvo leiki á mótinu með aðeins innan við tuttugu klukktíma á milli þeirra. Íslenska handboltalandsliðið fær ekki langan tíma til að jafna sig eftir leikinn á móti Spánverjum í kvöld því íslenska liðið spilar strax fyrsta leikinn í Ólympíuhöllinni í München á morgun. Íslensku strákarnir fengu meira en tvo sólarhringa í hvíld á milli leik eitt og tvö á HM en nú er allt annað upp á teningnum hjá okkar mönnum. Þriðja umferðin í B-riðlinum er nefnilega spiluð strax á morgun og kemur það í hlut íslenska liðsins að spila fyrsta leik dagsins sem er á móti Barein. Strákarnir hans Arons Kristjánssonar í Barein spiluðu aftur á móti fyrsta leikinn í B-riðlinum í dag og fá því miklu lengri hvíld en íslensku strákarnir. Leikur Íslands og Barein á morgun hefst klukkan 15.30 að staðartíma eða klukkan 14.30 að íslenskum tíma. Leikurinn við Spán var núna að klárast eftir klukkan hálf níu í kvöld að staðartíma, hálf átta að íslenskum tíma, þannig að það eru minna en tuttugu tímar í næsta leik strákanna okkar. Vísir fór yfir leikjadagskrána í riðlakeppni HM í handbolta og þar kemur í ljós að aðeins eitt annað lið lendir í sömu stöðu og það íslenska. Lið Sádí Arabíu spilar síðasta leikinn í C-riðli á morgun sem er á móti Dönum og svo fyrsta leikinn á þriðjudaginn sem er á móti Túnis.
HM 2019 í Þýskalandi og Danmörku Mest lesið Vill fá frí milli leikja eins og frönsku liðin Fótbolti Botnlanginn fjarlægður úr Embiid Körfubolti Formleg kvörtun á borði UEFA: Átti Barcelona að fá víti gegn Atlético? Fótbolti „Ég vildi óska þess að ég hefði ekki verið svona mikið veik“ Handbolti Svartfellingar gerðu stelpunum okkar góðan greiða Handbolti Hitti óvart og fékk síðan flautukörfu í andlitið Körfubolti Ólympíuhöll brennur í Ríó Sport KA - Valur 30-33 | Svöruðu fyrir sig en tókst ekki að landa sigri Handbolti Besta-spáin 2026: Óþreyja í Garðabænum Íslenski boltinn „Hákarlinn“ enn kæstur þrjátíu árum eftir frægt klúður Golf Fleiri fréttir „Heyrum varla í hvor öðrum“ Svartfellingar gerðu stelpunum okkar góðan greiða Blær situr sem límdur við botninn Arnór með bakið upp við vegg en Einar fagnar KA - Valur 30-33 | Svöruðu fyrir sig en tókst ekki að landa sigri „Ég vildi óska þess að ég hefði ekki verið svona mikið veik“ Sagt upp störfum hjá Aftureldingu Stjarnan með sterka yfirlýsingu í fyrsta leik Titilvörnin hefst vel hjá Óðni Janus fagnaði jafntefli og mætir Magdeburg næst Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 35-30 | Valtað yfir stelpurnar okkar í Þórshöfn „Allt of margir leikmenn sem þurfa að stíga upp“ „Þetta er margfræg klisja“ „Tel mig vera rosalegan stemningskarl“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-21 | Hafnarfjörður er hvítur í bili Íslendingaliðið áfram eftir frábæran sigur Stórleikur Kristjáns dugði skammt Uppgjörið: Valur - KA 39-21 | Algjör slátrun á Hlíðarenda „Þeir refsa fyrir öll mistök og þeir refsuðu vel í dag“ Viggó fer til Flensburg Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Gísli með sjö stoðsendingar þegar Magdeburg endurheimti sjö stiga forskot Stórleikur Hauks dugði ekki til sigurs Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Díana Dögg innsiglaði deildarmeistaratitil í toppslag Stjarnan og Hörður berjast um sæti í Olís deildinni Viktor með flottan leik og Börsungar halda áfram að valta yfir deildina Lið Donna byrjar úrslitakeppnina vel Bjarki í úrslitaeinvígið í Ungverjalandi Hafdísi blöskraði valið: „Konur sem fá ekki blómin sem þær eiga skilið“ Sjá meira