Innlent

Konur eigi erfiðara með að fara frá fjölskyldu til að fara í fíknimeðferð

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Kanadískur sérfræðingur segir algengt að konur veigri sér við að sækja fíknimeðferð þar sem þær eigi erfitt með að fara frá börnum sínum á meðan. Um þriðjungur þeirra sem sækir meðferð hjá sjúkrahúsi SÁÁ að Vogi eru konur.

Nancy Poole er forstöðukona rannsóknarstofnunar í Kanada sem sérhæfir sig í heilsu kvenna og er sérfræðingur kynjaðri nálgun á heilsu og fíkn. Hún er stödd hér á landi í tengslum við ráðstefnu um málefnið sem fram fór í vikunni. Hún segir mikilvægt að þjónusta og meðferðarúrræði séu miðuð að því sem henti hvoru kyni. „Málið hjá konunum er að þeim finnst oft erfitt að fara frá börnunum sínum svo konur fara síður í meðferð en karlar því þetta er mikil hindrun fyrir það,“ segir Nancy.

Þetta á líka við hér á landi samkvæmt en upplýsingum frá SÁÁ er það mjög algengt að konur leiti sér seint hjálpar vegna fíknivanda. Það megi meðal annars rekja til hlutverks þeirra innan fjölskyldu þótt fleiri þættir spili einnig inn í. Í fyrra voru karlar um 67% þeirra sem lögðust inn á sjúkrahúsið Vog en konur 33%. Hlutfall kvenna hefur þó farið vaxandi frá árinu 1977.

„Í Kanada höfum við reynt að opna fleiri göngudeildarúrræði svo konur þurfi ekki að fara frá börnunum til að fara í meðferð þar sem þær þurfa að dvelja eða skapa úrræði sem ná til bæði mæðra og barna saman, og feðra þegar þeir eru inni í myndinni,“ segir Nancy.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×