Hefur ekki skorað mark á útivelli í Meistaradeildinni í þrjú og hálft ár Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. apríl 2019 14:00 Suárez hefur ekki enn skorað í Meistaradeild Evrópu í ár. vísir/getty
Luis Suárez hefur ekki skorað mark á útivelli í Meistaradeild Evrópu síðan í september 2015, eða í 1302 daga. Síðasta mark Suárez á útivelli í Meistaradeildinni kom í 1-1 jafntefli Barcelona og Roma á Ólympíuleikvanginum í Róm 16. september 2015. Síðan þá eru liðin rúm þrjú og hálft ár. Frá leiknum í Róm hefur Suárez skorað ellefu Meistaradeildarmörk sem öll hafa komið á Nývangi í Barcelona. Úrúgvæinn hefur verið kaldur í Meistaradeildinni undanfarin tvö tímabil. Í fyrra skoraði hann aðeins eitt mark og hann er ekki kominn með mark í Meistaradeildinni í ár. Barcelona sækir Manchester United heim í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Suárez verður væntanlega á sínum stað í byrjunarliði Börsunga sem hafa ekki komist í undanúrslit Meistaradeildarinnar síðan 2015. Suárez lék sjö leiki gegn United þegar hann var í herbúðum Liverpool og skoraði tvö mörk. Þrátt fyrir markaþurrð í Meistaradeildinni hefur Suárez skorað grimmt fyrir Barcelona að undanförnu. Í síðustu níu leikjum Spánarmeistaranna hefur úrúgvæski framherjinn skorað sjö mörk. Hann er næstmarkahæstur í spænsku deildinni með 20 mörk, 13 mörkum á eftir samherja sínum, Lionel Messi. Leikurinn Manchester United og Barcelona hefst klukkan 19:00 og verður sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2. Upphitun fyrir leiki kvöldsins í Meistaradeildinni hefst klukkan 18:30 á Stöð 2 Sport.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjá meira