Bróðir árásarmannsins í Manchester ekki framseldur um sinn Vésteinn Örn Pétursson skrifar 27. apríl 2019 11:04 Hasham Abedi er yngri bróðir Salmans Abedi.
Fyrirætlanir um að framselja bróður árásarmannsins sem sprengdi sig í loft upp á tónleikum bandarísku söngkonunnar Ariönu Grande í Manchester árið 2017 frá Líbíu til Bretlands hafa verið settar á ís, vegna borgarastyrjaldar sem nú geisar í fyrrnefnda landinu. Innanríkisráðherra Líbíu, Fathi Bashagha, sagði í samtali við ríkisútvarp Bretlands, BBC, að samþykkt hafi verið að framselja Hashem Abedi til Bretlands á þeim grundvelli að hann er breskur ríkisborgari. Hann er bróðir Salmans Abedi, sem varð 22 að bana og særði 139 í sjálfsmorðssprengjuárás á tónleikum Ariönu Grande í Manchester-Arena tónleikahöllinni í maí 2017. Stjórnvöld í Líbíu berjast nú við uppreisnarher hermarskálksins Khalifa Haftar og segir ráðherrann forgangsatriði stjórnvalda vera að verja höfuðborgina, Tripoli. Því verður einhver bið eftir framsali Abedi. „Nú bíðum við. Nú er stríð, allt annað er á bið. Við verðum að bíða uns átökum lýkur,“ sagði Bashagha við BBC. Abedi var hendtekinn í Líbíu stuttu eftir að bróðir hans framdi árásina í Manchester. Bretar lögðu fram framsalsbeiðni á hendur honum á grundvelli gruns um að hann hafi skipulagt árásina með bróður sínum. Ríkisstjórn Líbíu hafði áður sagt að áætlað væri að Abedi yrði framseldur fyrir árslok 2018.
Bretland Hryðjuverk í Manchester Líbía Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira