Páfinn hvetur hárgreiðslufólk til að hætta að slúðra Atli Ísleifsson skrifar 30. apríl 2019 08:47 Frans páfi hefur gegnt stöðu páfa frá árinu 2013. epa
Frans páfi hefur beint því til hárgreiðslufólks að „forðast að láta undan þeirri freistni að slúðra“. Hárgreiðslufólk ætti þess í stað að leita innblásturs hjá sextándu aldar dýrðlingi sem þekktur var fyrir að klippa hár, blóðtöku og aflimanir. Páfi lét orðin falla þegar hann ávarpaði hóp hágreiðslufólks og snyrtifræðinga í pílagrímsferð til Páfagarðs í gær. „Sinnið starfi ykkar á kristinn máta með því að koma fram við viðskiptavini ykkar af kurteisi og vinsemd, bjóða þeim góð ráð og hvatningu,“ sagði páfi. „Og forðist að láta undan þeirri freistni að slúðra sem er gjarnan tengd við ykkar starfssvið.“ Í frétt Deutsche Welle segir að Frans páfi hafi ávarpað um 230 manns og hvatti hann þá til að fara að fordæmi dýrðlingsins Martino de Porres, sem uppi var í kringum aldamótin 1600 og tekinn í dýrðlingatölu af páfanum Páli sjötta árið 1966. Porres starfaði meðal annars við að skerða hár, taka blóð og aflima fólk. Sagði páfi að líkt og Porres gæti hárgreiðslufólk í starfi sínu „breytt á réttlátan máta og þannig skilað jákvæðu framlagi til samfélagsins“.
Páfagarður Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Sjá meira