Golden State einum sigri frá úrslitunum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 19. maí 2019 10:12 Curry og Green voru bestu leikmenn Golden State í nótt. vísir/getty
Golden State Warriors er einum sigri frá því að komast í úrslit NBA-deildarinnar fimmta árið í röð eftir að hafa lagt Portland Trail Blazers að velli, 99-110, í nótt. Golden State er 3-0 yfir í einvígi liðanna og getur tryggt sér sæti í úrslitunum með sigri í fjórða leiknum í Portland aðfaranótt þriðjudags. Ekkert lið í sögu NBA hefur komið til baka og unnið einvígi eftir að hafa lent 3-0 undir. Tölfræðin er því ekki með Portland í liði. Portland byrjaði betur í leiknum í nótt og komst mest 18 stigum yfir í fyrri hálfleik. Munurinn í hálfleik var 13 stig, 66-53. Golden State var sterkari aðilinn í seinni hálfleik þar sem liðið hélt Portland í aðeins 33 stigum. Stephen Curry skoraði 36 stig fyrir Golden State og Draymond Green var með þrefalda tvennu; 20 stig, 13 fráköst og ellefu stoðsendingar. Curry hefur skorað 30 stig eða meira í síðustu fjórum leikjum Golden State. Andre Igoudala lék ekkert í 4. leikhluta vegna meiðsla en það kom ekki að sök fyrir gestina. CJ McCollum skoraði 23 stig fyrir Portland og Damian Lillard 19. Sá síðarnefndi hitti aðeins úr fimm af 18 skotum sínum utan af velli. Þá klúðruðu leikmenn Portland 13 vítaskotum í leiknum sem reyndist dýrt þegar uppi var staðið.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira