Hegerberg með þrennu og Lyon Evrópumeistari fjórða árið í röð Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 18. maí 2019 18:09 Ada Hegerberg (t.v.) átti stórleik í dag vísir/getty
Lyon varði Evrópumeistaratitil sinn með öruggum sigri á Barcelona í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Barcelona var að taka þátt í sínum fyrsta úrslitaleik en fékk martraðarbyrjun. Þýska landsliðskonan Dzsenifer Marozsan skoraði eftir aðeins fjögurra mínútna leik. Þá ákvað besta knattspyrnukona heims Ada Hegerberg að sýna afhverju hún átti Gullboltann skilinn. Hegerberg skoraði annað mark Lyon á 14. mínútu. Sex mínútum síðar skoraði hún annað mark sitt, og þriðja mark Lyon, af stuttu færi. Hegerberg fullkomnaði svo þrennuna á 30. mínútu, hún skoraði þrjú mörk á sautján mínútna kafla. Staðan í hálfleik 4-0 og fjórði Evrópumeistaratitillinn í röð á leiðinni til Frakklands. Eftir að Meistaradeild Evrópu kvenna var sett í núverandi form, með einum úrslitaleik, hafði enginn skorað þrennu í úrslitaleiknum fyrr en Hegerberg mætti til leiks í dag. Spánverjarnir náðu að halda aftur af Lyon í seinni hálfleik og skoruðu sárabótamark á 89. mínútu, það var Asisat Oshoala sem gerði það, en það var of lítið og allt of seint. Leikurinn endaði með 4-1 sigri Lyon sem vann Meistaradeild Evrópu fjórða árið í röð.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Fleiri fréttir Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Sjá meira