Kona nýr aðstoðarþjálfari hjá Boston Celtics Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. júní 2019 12:00 Kara Lawson er skemmtileg týpa. Getty/Marvin Joseph
Kara Lawson verður nýr aðstoðarþjálfari hjá Boston Celtics í NBA-deildinni í körfubolta næsta vetur. Lawson mun aðstoða hinn frábæra þjálfara Brad Stevens og það var einmitt tækifærið að vinna með honum sem sannfærði Köru um að taka slaginn á komandi tímabili.The Boston Celtics are hiring Kara Lawson as an assistant coach, league sources tell ESPN. Lawson, an ex-WNBA and Olympic champion, has been an NBA commentator with ESPN and the TV analyst for the Washington Wizards. — Adrian Wojnarowski (@wojespn) June 27, 2019Kara Lawson er 38 ára gömul og spilaði í WNBA-deildinni frá 2003 til 2015. Hún hefur unnið mikið sem körfuboltaspekingur í sjónvarpi síðan að körfuboltaskórnir fóru upp á hillu. Lawson kom að körfuboltalýsingum á ESPN og lýsti líka leikjum Washington Wizards í NBA. Hún hefur fengið mikið hrós fyrir starf sitt í sjónvarpi enda með mikið vit á körfubolta. Kara Lawson var mjög öflugur leikstjórnandi á sínum ferli og varð bæði WNBA-meistari (2005 með Sacramento Monarchs) og Ólympíumeistari (2008 í Peking) á sínum ferli. Kara Lawson verður fjórða konan til að þjálfa í NBA-deildinni en hinar eru Becky Hammon hjá San Antonio Spurs, Jenny Boucek hjá Dallas Mavericks og Lindsay Gottlieb hjá Cleveland Cavaliers. Becky Hammon var sú fyrsta, Jenny Boucek bættist í hópinn á síðasta tímabili og Lindsay Gottlieb er ný á þessu tímabili eins og Kara Lawson.
NBA Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Sjá meira