Gaf bláfátækri konu út á götu meira en milljón í seðlum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2019 13:30 James Harden. Getty/Tim Warner
NBA-stórstjarnan James Harden var afar rausnarlegur á dögunum þegar hann sjá fátæka konu með fjölskyldu sinni. Konan átti erfitt og var í vandræðum með að fæða fjölskyldu sína. Harden var staddur í sumarfríi á Bahamaeyjum þegar hann sá konuna sem var að reyna að veiða sér í matinn ásamt fjölskyldumeðlimum sínum. James Harden tók upp seðlabunka með tíu þúsund dollurum og lét konuna fá. Hún hefur líklega aldrei áður séð svo mikinn pening en þetta eru ein milljón og 229 þúsund í íslenskum krónum. Hún tjáði honum að hún ætti í alvöru í miklum erfiðleikum og þakkaði Harden mikið fyrir. Félagi James Harden birti myndband af þessu og hrósaði sínum manni. ESPN sagði frá þessu myndbandi og gjöf Harden eins og sjá má hér fyrir neðan.James Harden gave this woman $10K when he saw her and her family struggling for food. (via @Tpizzle) pic.twitter.com/Y3mfUjUpqt — ESPN (@espn) August 11, 2019Sá sem tók upp myndbandið var Troy Payne, sem er fyrrum NBA-leikmaður og nú markaðsstjóri hjá Adidas. Harden er þekktur fyrir að gefa af sér og styður bak við krakka í erfiðri stöðu í gegnum góðgerðasamtökin sín 3thehardenway James Harden er heldur betur í stöðu til að gefa pening. Hann var með 30,4 milljónir Bandaríkjadala í laun frá Houston Rockets fyrir 2018-19 tímabilið eða meira en 3,7 milljarða íslenskra króna. Launin hækka síðan upp í 37,8 milljónir á næstu leiktíð sem gera meira en 4,6 milljarða í íslenskum krónum. Harden verður þrítugur seinna í þessum mánuði. Á síðustu leiktíð í NBA var hann langstigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar með 36,1 stig í leik en hann gaf einnig 7,5 stoðsendingar og tók 6,6 fráköst í leik. Harden var valinn mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar tímabilið 2017-18.
NBA Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Framlengir í Vesturbænum Íslenski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Fleiri fréttir Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Sjá meira