Sigurinn færði Rory stigameistaratitilinn á mótaröðinni og um leið fimmtán milljónir dollara sem er hæsta verðlaunafjárhæð sem greidd hefur verið í golfi og varð hann um leið annar kylfingurinn í sögunni sem vinnur stigamótið tvisvar en hinn er Tiger Woods.
Vonbrigðin á Norður-Írlandi
Rory hóf árið af krafti og áttu margir von á því að hann myndi hið minnsta vinna eitt risamót á árinu eftir spilamennskuna í byrjun árs. Rory fagnaði sigri á Players-meistaramótinu eftir að hafa endað meðal sex efstu á fimm mótum þar áður. Honum tókst ekki að færa spilamennskuna yfir á stórmótin. Rory lenti í 21. sæti í Masters-mótinu, eina risamótið sem hann á eftir að vinna til að ljúka alslemmunni (e. Grand-slam), en lék betur á Opna bandaríska meistaramótinu og PGA-meistaramótinu þar sem hann endaði meðal tíu efstu.
Svo kom að Opna breska meistaramótinu sem fór fram á Royal Portrush-vellinum. Fyrstu kynni Rorys af vellinum voru þegar hann fylgdist með pabba sínum leika hann sem ungur drengur og lék hann völlinn í fyrsta sinn tíu ára gamall.
Sex árum síðar vakti það athygli þegar Rory setti nýtt vallarmet, kom í hús á ellefu höggum undir pari á þessum geysierfiða velli, met sem stendur enn í dag. Pressan sem fylgdi því að leika á heimavellinum virtist ná til McIlroys því að hann fékk fjórfaldan skolla á fyrstu holu dagsins og lék fyrsta hringinn á átta höggum yfir pari.
Rory tókst að rétta úr kútnum og lék frábært golf á öðrum degi en mistök fyrsta dagsins kostuðu hann áframhaldandi þátttökurétt því að hann missti af niðurskurðinum.

Annað árið í röð var Rory búinn að leika vel á lokamóti tímabilsins og komast í lokaráshópinn, sem fór út á East Lake-golfvöllinn í Georgíufylki um helgina, með það að markmiði að landa titlinum. Í fyrra fataðist Rory flugið á lokasprettinum þegar hann féll úr öðru sæti niður í sjöunda sætið með næstversta hring dagsins.
Á sama tíma gekk Rory við hlið Tiger Woods lokahringinn þegar Tiger vann sitt fyrsta mót í fimm ár með tilheyrandi fjölmiðlaumfjöllun og fylgi. Rory féll í skugga Tigers Woods á síðasta ári og þurfti að fylgjast með ótrúlegum móttökum sem Tiger fékk undir lokin, en þetta ár var sviðsljósið hans.
Þrumuveður á East Lake-vellinum um helgina gerði það að verkum að Rory þurfti að leika 31 holu á lokadegi mótsins og aftur hóf hann lokahringinn í öðru sæti. Nú var Rory að eltast við Brooks Koepka, fjórfaldan risamótsmeistara undanfarin tvö ár sem skaust fram úr Rory á lokasprettinum á WGC-móti í síðasta mánuði, en nú var það Rory sem stóð uppi sem sigurvegari.
Þriggja högga sveifla á sjöundu holu gaf McIlroy forskot á næstu keppendur og leit hann aldrei í baksýnisspegilinn eftir það. Smá taugatitringur virtist koma í Rory þegar stutt var eftir en tveir fuglar í röð á lokaholunum gerðu út um vonir annarra kylfinga og gerðu það að verkum að Rory lék alla hringina undir pari.

Þetta er í annað sinn sem Rory ber sigur úr býtum á Fedex-stigamótaröðinni og því í annað sinn sem hann tryggir sér sigur í mótinu sem er með hæstu verðlaunafjárhæð ársins. Með sigrinum rýkur Rory upp úr ellefta sæti peningalistans í það fimmta með 63 milljónir dollara en aðeins Tiger Woods, Phil Mickelson, Vijay Singh og Jim Furyk hafa unnið sér inn meiri peninga á ferlinum en Rory.
Samtals vann Rory 22.785.286 Bandaríkjadollara á þessu tímabili eða rétt rúmlega 2,8 milljarða íslenskra króna ásamt því að vinna aðra 47 þúsund dollara, sex milljónir íslenskra króna, á eina mótinu á Evrópumótaröðinni sem Rory tók þátt í á þessu tímabili.
Afrakstur þessa eina tímabils hefði nægt Rory til að ná 62. sæti á heildarpeningalista golfsins, fara upp fyrir kylfinga á borð við Fred Couples, Tom Lehman, Louis Oosthuizen og David Duval.
