Brutust inn og stálu NBA-meistarahringnum hans Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. september 2019 23:15 JaVale McGee er hér með þeim Draymond Green og Kevin Durant þar sem þeir eru nýbúnir að fá meistarahringinn afhentan fyrir sigurinn í NBA árið 2018. Getty/Ezra Shaw
NBA leikmaðurinn JaVale McGee varð fyrir þeirri óskemmtilegu lífsreynslu að það var brotist inn hjá honum á heimili hans í Los Angeles borg. JaVale McGee er nú leikmaður Los Angeles Lakers liðsins en hann lék áður með Golden State Warriors og varð meðal annars tvisvar sinnum NBA-meistari með félaginu. Innbrotsþjófarnir höfðu talsvert upp úr krafsinu því þeir komust yfir meira en tvö hundruð þúsund Bandaríkjadali sem og skartgripi í innbrotinu. Tvö hundruð þúsund dalir eru meira en 25 milljónir íslenskra króna.JaVale McGee's House Burglarized, NBA Championship Ring Stolen https://t.co/vZQA6TMsKG — TMZ (@TMZ) September 3, 2019 TMZ sagði frá innbrotinu og þar kom fram að þjófarnir hafi komist yfir annan af meistarahringjum JaVale McGee frá því að hann var leikmaður meistaraliðs Golden State Warriors 2017 og 2018. Innbrotsþjófarnir tóku með sér tvo peningaskápa af heimili McGee. Þeir komu inn á laugardaginn en McGee áttaði sig ekki á því fyrr en á þriðjudag. Það kemur ekki fram í frétt TMZ um hvorn hringurinn var um að ræða en þjófarnir tóku líka skíðagleraugun sem JaVale McGee fagnaði titlinum með í klefanum eftir annan NBA titilinn. Lögreglan er með málið í rannsókn en lögreglumenn eru að skoða efni úr öryggismyndavélum. Það hjálpaði örugglega ekki til að þjófarnir fengu nokkra daga forskot.
NBA Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Körfubolti Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira