Skoðun

Nei

Björn Leví Gunnarsson skrifar
Síðastliðinn laugardag birtist bakþankapistill Sirrýjar Hallgrímsdóttur um Píratasiðferðið. Þar fullyrti Sirrý að Píratar hefðu ákveðið að greiða ekki atkvæði gegn formannsframboði Bergþórs Ólasonar í umhverfis- og samgöngunefnd. Þetta er stórfurðuleg fullyrðing þar sem ég, sem áheyrnarfulltrúi Pírata í nefndinni, kannast ekki við að hafa tekið neina slíka ákvörðun. Í fyrsta lagi af því að sem áheyrnarfulltrúi get ég ekki greitt atkvæði og í öðru lagi af því að ég bókaði skýrt nei í fundargerð um málið.

Ég minni á orð forsætisráðherra í viðtali við fjölmiðla í kjölfar niðurstöðu siðanefndar: „Það sem kemur mér kannski fyrst og fremst á óvart eru viðbrögð þessara þingmanna sem um ræðir. Að þeir virðast ekki enn skilja alvarleika sinna orða sem um var talað, skilja ekki að orð hafa afleiðingar og jafnvel reynt að snúa málinu upp í pólitískan spuna um að hér sé um aðför að þeim að ræða.“ Og „að það sé fremur haldið áfram að grafa sig ofan í holuna frekar en að líta upp úr henni og axla ábyrgð á eigin orðum og gjörðum. Því það voru engir aðrir en þessir aðilar sem sátu þetta kvöld og höfðu þessi orð uppi um nafngreindar, einkum, konur.“

Við atkvæðagreiðsluna hélt ég stutta ræðu í nefndinni þar sem ég sagði meðal annars að það sé okkar hlutverk að fólk standist reikningsskil. Hverjar svo sem afleiðingarnar af því kunni að vera. Við getum staðið okkur í því hlutverki og endurtekið orð okkar í ályktun sem við samþykktum þann 5. júní á síðasta ári (einungis um hálfu ári áður en upp komst að sumir meintu ekkert með atkvæði sínu) eða við getum sýnt í verki að við hin meintum heldur ekki neitt með atkvæðum okkar er þingmenn sögðust „leggja sig fram um að skapa í störfum sínum heilbrigt starfsumhverfi innan þings sem utan og hvarvetna þar sem þeir sinna störfum sínum þar sem hafnað er hvers konar kynferðislegri eða kynbundinni áreitni, einelti eða annarri vanvirðandi framkomu“.

Lykilorðið í því sem var bætt við siðareglurnar í upphafi sumars í fyrra er „hafnað“. Að mínu mati snérist atkvæðagreiðslan um formannssætið í umhverfis- og samgöngunefnd um að hafna hvers konar kynferðislegri eða kynbundinni áreitni. Þess vegna bókaði ég „nei“, af því að ég gat ekki gert það með atkvæði. Ég ákvað ekki, að greiða ekki atkvæði gegn Bergþóri. Ég ákvað að segja nei.

Höfundur er þingmaður Pírata


Tengdar fréttir

Píratasiðferðið

Flestir telja sig hafa góð prins­ipp en þeir eru kannski færri sem standa við þau þegar á reynir. Og það er einmitt þá sem prinsippin skipta máli, hverju við erum tilbúin að fórna til vegna þeirra.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×