Hvað fáum við fyrir reikninginn? Stefán Vagn Stefánsson skrifar 12. október 2026 13:17 Það er jákvætt að nú sé stefnt að auknu samræmi og hófsemi í fyrirhuguðum gjaldahækkunum ríkis og sveitarfélaga. Það er einmitt sú nálgun sem við í Framsókn lögðum til sl. vor. Ákvarðanir hins opinbera þurfa að taka mið hver af annarri og styðja sameiginleg markmið um minni verðbólgu og betri afkomu heimilanna. Stjórnvöld þurfa á hinn bóginn einnig að geta svarað bæði fyrir reikninginn sem heimilin greiða og þjónustuna sem þau fá. Samræming gjalda verður því að byggjast á mati á áhrifum þeirra á fjárhag heimilanna og á rekstur og þjónustu hins opinbera. Við fögnum því að þessi sjónarmið fái aukinn hljómgrunn. Árangurinn skiptir meira máli en hver átti fyrsta orðið. Nú þarf að sýna hvað samræmingin þýðir í framkvæmd. Margar hækkanir, einn heildarreikningur Einstakar gjaldahækkanir geta átt sér málefnalegar skýringar. Kostnaður við þjónustu breytist og rekstur ríkis og sveitarfélaga þarf að ganga upp. En margar rökstuddar ákvarðanir geta saman orðið íþyngjandi. Hver stofnun horfir á sitt verkefni og hver opinber aðili á sín afkomu- og skuldamarkmið. Heimilin greiða hins vegar alla reikningana úr sama potti. Þau finna fyrir samanlögðum áhrifum ákvarðananna, óháð því hver innheimtir. Sama gildir um fyrirtækin sem þurfa að standa undir launum, fjárfestingum og daglegum rekstri. Þess vegna þarf að skoða gjöld, skatta og bætur saman. Breyting á einum stað getur étið upp ávinning sem verður til annars staðar. Leiðin að aðhaldi skiptir máli Traust ríkisfjármál eru mikilvæg forsenda stöðugleika. Aðhald getur dregið úr eftirspurn og verðbólguþrýstingi og skapað betri skilyrði fyrir lækkun vaxta. Þannig getur ábyrg fjármálastjórn létt undir með skuldsettum heimilum og fyrirtækjum. En það skiptir máli hvernig aðhaldinu er náð. Hækkun neysluskatta og opinberra gjaldskráa getur hækkað verðlag beint, þótt aukin skattheimta dragi jafnframt úr eftirspurn. Meta þarf þessi áhrif saman. Betri afkoma ríkissjóðs segir ekki ein og sér alla söguna um áhrif aðgerðanna á verðbólgu og kaupmátt. Hækkanir sem skila sér í vísitölu neysluverðs geta jafnframt aukið höfuðstól verðtryggðra lána. Áhrifin takmarkast þá ekki við reikning mánaðarins heldur geta einnig birst í meiri skuldum til framtíðar. Hófsemi í gjaldtöku verður því að fylgja skýr forgangsröðun í opinberum rekstri. Ef fallið er frá fyrirhuguðum tekjum þarf að sýna hvernig því er mætt. Verkefnið er að ná nauðsynlegum árangri í ríkisfjármálum með sem minnstum skaða fyrir kaupmátt, atvinnustarfsemi og verðstöðugleika. Sama prósenta dugar ekki Samræming felst ekki sjálfkrafa í því að allir hækki gjöld á sama tíma eða um sömu prósentu. Spyrja þarf hvaða hækkanir séu nauðsynlegar, hvort hægt sé að takmarka þær og hvort aukin hagkvæmni geti dregið úr þörfinni. Sama hækkun vegur misþungt eftir tekjum, búsetu og fjölskylduaðstæðum. Heimili sem þarf tvo bíla til að sækja vinnu og þjónustu hefur annað svigrúm en heimili sem getur nýtt almenningssamgöngur. Samræming verður að taka mið af þessum veruleika. Þegar stjórnvöld kalla eftir hófsemi í verðlagsákvörðunum þurfa eigin ákvarðanir að styðja þau skilaboð. Það styrkir trúverðugleika hagstjórnarinnar og samstarf við sveitarfélög og aðila vinnumarkaðarins. Frá umræðu til framkvæmda Við í Framsókn höfum bent á aukinn kostnað sem fyrirhugaðar breytingar opinberra gjalda geta lagt á heimilin. Nú þarf að tryggja að heildarmyndin liggi fyrir áður en endanlegar ákvarðanir eru teknar. Gegnsæi í fjármálum hins opinbera er grundvallaratriði. Áður en Alþingi afgreiðir fjárlög þarf að birta aðgengilegt mat á samanlögðum áhrifum skatta, gjalda og bótabreytinga á ólíkar heimilisgerðir. Þar þarf einnig að taka mið af fyrirhuguðum gjaldahækkunum sveitarfélaga eftir því sem upplýsingar liggja fyrir. Heimili og fyrirtæki þurfa tímanlegar upplýsingar til að geta skipulagt sig. Og greina þarf áhrifin Jafnframt þarf að meta áhrif samræmingarinnar á rekstur og þjónustu ríkis og sveitarfélaga. Það nægir ekki að lýsa yfir að gjaldahækkunum verði haldið í skefjum. Sýna þarf hvernig minni tekjum en áætlað var verði mætt og hvort það kalli á hagræðingu, breytta forgangsröðun eða skerðingu þjónustu. Lægri gjöld gagnast heimilunum síður ef á móti kemur lakari þjónusta sem þau þurfa að kaupa annars staðar. Slíkt heildarmat leysir okkur ekki undan erfiðum ákvörðunum. Það gerir okkur kleift að taka þær á betri forsendum. Stjórnvöld þurfa að geta svarað bæði fyrir reikninginn sem heimilin greiða og þjónustuna sem þau fá. Höfundur er þingmaður Framsóknar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Vagn Stefánsson Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Skoðun Við erum rétt að byrja Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Að eldast er að lifa Halldór S. Guðmundsson,Sirrý Sif Sigurlaugardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð á gervigreindinni? Kristján Logason skrifar Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun