Spurði hvort sami leyndarhjúpur ríkti ef Ingibjörg hefði fengið gullstöng eða bíl Kristín Ólafsdóttir skrifar 4. október 2019 12:36 Einar Þór Sverrisson lögmaður og Ari Brynjólfsson blaðamaður Fréttablaðsins í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Vísir/vilhelm
Lögmenn í máli Seðlabanka Íslands gegn Ara Brynjólfssyni, blaðamanni Fréttablaðsins, tókust á um upplýsingalög og framgöngu Seðlabankans gagnvart „varðhundi almennings“, blaðamanninum, í Héraðsdómi Reykjaness dag. Þá velti lögmaður Ara því upp hvort sami „leyndarhjúpur“ hefði ríkt um námsstyrk Ingibjargar Guðbjartsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra gjaldeyriseftirlits bankans, ef hún hefði fengið gullstöng eða bíl, en ekki fjárstyrk, við starfslokin. Seðlabankinn stefndi Ara til að fá úrskurði úrskurðarnefndar um upplýsingamál frá því í júlí síðastliðnum felldan úr gildi. Nefndin taldi Seðlabankanum skylt að veita blaðamanninum upplýsingar um námsstyrk sem Ingibjörg fékk þegar Már Guðmundsson, þáverandi seðlabankastjóri, gerði við hana starfslokasamning.Sjá einnig: Bankinn höfðar mál gegn blaðamanni Fréttablaðið hefur eftir heimildum sínum að Ingibjörg hafi fengið greitt á annan tug milljóna króna við starfslokin, bæði með launagreiðslum án kröfu um vinnuframlag og námsstyrk við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. Seðlabankinn hefur enn ekki afhent upplýsingar um samninginn en réttaráhrifum úrskurðarins var frestað meðan málið er rekið.„Lykilstarfsmönnum“ boðin ýmis fríðindi Arnar Þór Stefánsson lögmaður Seðlabankans rakti aðdraganda málsins í byrjun ræðu sinnar. Þar kom fram að gjaldeyriseftirlit Seðlabankans hefði verið stofnað í september árið 2009. Til að halda í lykilstarfsmenn eftirlitsins hafi ýmsum ráðum verið beitt. Þeim hafi verið boðinn lengri uppsagnarfrestur, bónusgreiðslur og lofað framtíðarstörfum í bankanum. Ingibjörg hafi verið einn af þessum lykilmönnum. Mikið hafi jafnframt mætt á Ingibjörgu á álagstímum, einkum vorið 2016 við losun aflandskróna. Greiddar voru álagsgreiðslur til starfsmanna vegna þeirrar vinnu en Arnar Þór sagði Ingibjörgu ekki hafa borið þar hlutfallslega jafnmikið úr býtum og aðrir starfsmenn. Til að tryggja að Ingibjörg myndi ekki „fara frá borði“ var gert við hana munnlegt samkomulag í janúar árið 2012 um að hún myndi starfa áfram hjá bankanum í tvö ár, sem urðu þó að endingu um fjögur, gegn því að henni yrði gert kleift að fara í framhaldsnám með hjálp bankans.Arnar Þór Stefánsson, lögmaður Seðlabanka Íslands, í dómsal.Vísir/VilhelmFékk styrkinn vegna sérstakrar hæfni og því ekki um föst laun að ræða Arnar Þór Stefánsson lögmaður Seðlabankans sagði forsendur úrskurðar úrskurðarnefndar upplýsingamála „nokkuð sérstakar“. Þannig byggði hann mál sitt á því að nefndin hefði eingöngu litið til 1. málsgreinar 7. greinar upplýsingalaga og litið svo á að hún leiði þegar til aðgangs að upplýsingunum. Nefndin hefði ekki vikið einu orði að samspili 1. og 2. málsgreinar laganna, en sú síðari lýtur að þeim upplýsingum um opinbera starfsmenn sem stofnunum er skylt að veita. Ingibjörg hefði fengið námsstyrkinn vegna sérstakrar hæfni, árangurs og álags í starfi og styrkurinn teldist því viðbótarlaun. Samningur um námsstyrk flokkaðist þannig ekki sem föst launakjör og því ekki skylt að veita upplýsingar um þau. Arnar Þór sagði raunar að Seðlabankinn liti einkum á málið sem tækifæri til að skýra þessa 7. grein upplýsingalaga. Sjaldgæft væri að stjórnvöld sæktu mál af þessu tagi og dómaflóran þannig af skornum skammti. Hlógu að því að þeir fengju ekki að sjá skjalið Úrskurðurinn væri jafnframt hámark „kollvörpunar“ miðað við fyrri úrskurði nefndarinnar og hefði fært hana „út af sporinu“. Þá vísaði Arnar Þór einnig til þess að um Seðlabankann giltu sérlög, þ.e. þagnarskylduákvæði í upplýsingalögum, sem gangi framar 7. greininni. Bankinn hefði litið svo á að upplýsingar um námsstyrkinn væru nógu persónulegar Ingibjörgu til að málið félli undir þagnarskyldu.Sjá einnig: „Ég er bara að reyna að vinna mína vinnu“ Dómari spurði í kjölfarið hvort komið hefði til greina að afhenda Ara hluta skjalsins. Arnar Þór kvað svo ekki vera, litið væri svo á að um væri að ræða heildstætt skjal. „En nú skapast sérstök staða af því að gagnaðili hefur ekki séð skjalið,“ sagði Arnar Þór og uppskar þá hlátur frá Einari Þór Sverrissyni, lögmanni Ara, og Ara sjálfum. Ætla má að sá hlátur hafi verið þrunginn nokkurri kaldhæðni, ef marka má málflutning Einars sem nú verður vikið að. „Varðhundur almennings“ dreginn fyrir dóm Einar sagði að Seðlabankinn hefði gert allt sem í hans valdi stæði til að koma í veg fyrir birtingu umræddra gagna. Þannig hefði bankinn ákveðið að draga blaðamanninn Ara, „varðhund almennings“, fyrir dóm til að tryggja að kjör starfsmanns bankans yrðu „sveipuð leyndarhjúp“. Þá taldi Einar að námsstyrkur Ingibjargar félli tvímælalaust undir launakjör eins af æðstu stjórnendum bankans. Um væri að ræða dýrt háskólanám sem tengdist vinnu yfir fjögurra ára tímabil. Bankanum bæri að veita umbeðnar upplýsingar um styrkinn, almenningur hefði rétt á því. „Um hvað er samningurinn? Ég veit það ekki,“ sagði Einar. Miðað við lýsingu bankans sjálfs á samningnum og aðdraganda hans félli hann undir launakjörin.Már Guðmundsson var Seðlabankastjóri þegar gerður var starfslokasamningur við Ingibjörgu.Vísir/VilhelmMáli sínu til stuðnings velti Einar því upp hvort sami leyndarhjúpur hefði ríkt ef Seðlabankinn hefði ákveðið við starfslok Ingibjargar að hún fengi „eina gullstöng úr kistunni“ eða bíl. Einar efaðist um það. Velti fyrir sér tilgangi leyndarhjúpsins Einar sagði að úrskurður nefndarinnar væri jafnframt ekki í ósamræmi við fyrri úrskurði. Þá væri einblínt á umrædda 1. málsgrein 7. greinar upplýsingalaga vegna þess að andmæli bankans einblína einnig á hana en ekki 2. málsgrein. Þá hafnaði Einar því að upplýsingarnar um námsstyrkinn falli undir þagnarskylduákvæðið. Hann gagnrýndi jafnframt að bankinn berði sér nú á brjóst fyrir að gera ekki kröfu um málskostnað frá Ara. „En ekkert hefur komið fram um að borga málskostnað stefnda.“ Hér væri einnig verið að fjalla um stjórnarskrárvarinn rétt Ara til að fá skjalið í hendurnar. Einnig væri þess virði að velta því upp hvort samningurinn hefði verið gefinn upp til skatts og gengið frá honum samkvæmt reglum. „Er verið að setja þetta undir leyndarhjúp í einhverjum slíkum tilgangi?“ spurði Einar. „Hann [Seðlabankinn] er að vernda einhverja mjög undarlega hagsmuni sem maður einfaldlega áttar sig ekki á.“
Dómsmál Fjölmiðlar Seðlabankinn Tengdar fréttir Mál Seðlabanka fær flýtimeðferð Dómari hefur fallist á beiðni Seðlabanka Íslands um flýtimeðferð á máli bankans gegn Ara Brynjólfssyni, blaðamanni á Fréttablaðinu. 31. júlí 2019 06:30 Fordæma stefnu Seðlabankans á hendur blaðamanni Seðlabanki Íslands hefur stefnt blaðamanni Fréttablaðsins vegna fyrirspurnar hans um innri mál bankans. Blaðamannafélag Íslands segir vinnubrögð Seðlabankans bera keim af leyndarhyggju og kúgunartilburðum. Úrskurðarnefnd upplýsingamála hefur kveðið á um að bankanum beri að afhenda gögnin sem um ræðir. 1. ágúst 2019 17:57 Mál Ara flutt í héraði í dag Í dag fer fram munnlegur málflutningur í máli Seðlabanka Íslands gegn Ara Brynjólfssyni, blaðamanni Fréttablaðsins, í Héraðsdómi Reykjaness. 4. október 2019 07:00 „Ég er bara að reyna vinna mína vinnu“ Mál Seðlabanka Íslands gegn Ara Brynjólfssyni, blaðamanni Fréttablaðsins, var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í dag. 2. ágúst 2019 15:30 Mest lesið Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Innlent Mannskæð skotárás í skóla í Bandaríkjunum Erlent Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innlent Til skoðunar að flytja Sjálfstæðisflokkinn úr Valhöll Innlent Stefna Open AI vegna sjálfsvígs sonarins Erlent Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Innlent Glímdi við veikindi fyrir andlátið sem breyttu persónuleika hans Innlent Er við góða líkamlega heilsu en heilinn að „bregðast honum“ Erlent Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Innlent Með mikla áverka og mjög kaldur þegar hann fannst Innlent Fleiri fréttir Gátu ekki opnað hraðbankann þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Kári Stefánsson í beinni, erfiður hraðbanki og Dönum ekki skemmt Óttuðust um ferðamenn sem sátu fastir í Markarfljóti Glímdi við veikindi fyrir andlátið sem breyttu persónuleika hans Hraðbankaþjófur játar sök Framlengja gæsluvarðhald yfir leiðbeinandanum um fjórar vikur Supu hveljur á fundi með ráðherra á Egilsstöðum Grunaður hraðbankaþjófur nennti ekki með austur nóttina örlagaríku Með mikla áverka og mjög kaldur þegar hann fannst Móðirin áfram í haldi og húsleit á Írlandi Til skoðunar að flytja Sjálfstæðisflokkinn úr Valhöll Losun Íslands jókst á öllum sviðum og langt í land með skuldbindingar Bylting í heilbrigðisþjónustu og áróður Bandaríkjamanna Vilja halda leiðbeinandanum áfram bak við lás og slá Kynna drög að nýrri stefnu í heilbrigðismálum Ekki séð neitt þessu líkt á sínum fjörutíu ára ferli Innbrot og slagsmál í miðborginni Segir dóminn áfellisdóm yfir seinagangi lögreglu í kynferðisbrotamálum Málafjöldi tvöfaldast milli ára: „Hálfur milljarður farinn nú þegar“ Heilbrigðisráðuneytið færir sig um set Enginn vilji taka ábyrgð á því hvenær eigi að loka Reynisfjöru Minntust þess ekki að hafa brennt tösku fyrir Stefán Blackburn Sakar eftirlitsaðila um að framfylgja ekki leigubílalögum Játaði Hamraborgarmálið, grunaður í hraðbankamálinu og vitni í Gufunesmálinu Hraðbankinn fannst á Hólmsheiði „Starfsemi sem þarf auðvitað bara að stoppa" Ekkjan, fjársvikahrina og ferðamenn sem hunsa lokanir Lenti næstum framan á vörubíl við framúrakstur Nú má heita Snjókaldur en ekki Latína „Það er bara allt á floti hérna alls staðar“ Sjá meira
Mál Seðlabanka fær flýtimeðferð Dómari hefur fallist á beiðni Seðlabanka Íslands um flýtimeðferð á máli bankans gegn Ara Brynjólfssyni, blaðamanni á Fréttablaðinu. 31. júlí 2019 06:30
Fordæma stefnu Seðlabankans á hendur blaðamanni Seðlabanki Íslands hefur stefnt blaðamanni Fréttablaðsins vegna fyrirspurnar hans um innri mál bankans. Blaðamannafélag Íslands segir vinnubrögð Seðlabankans bera keim af leyndarhyggju og kúgunartilburðum. Úrskurðarnefnd upplýsingamála hefur kveðið á um að bankanum beri að afhenda gögnin sem um ræðir. 1. ágúst 2019 17:57
Mál Ara flutt í héraði í dag Í dag fer fram munnlegur málflutningur í máli Seðlabanka Íslands gegn Ara Brynjólfssyni, blaðamanni Fréttablaðsins, í Héraðsdómi Reykjaness. 4. október 2019 07:00
„Ég er bara að reyna vinna mína vinnu“ Mál Seðlabanka Íslands gegn Ara Brynjólfssyni, blaðamanni Fréttablaðsins, var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í dag. 2. ágúst 2019 15:30