Leikur Englands tvisvar stöðvaður vegna kynþáttaníðs Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. október 2019 20:03 Raheem Sterling í leiknum í kvöld vísir/getty
Dómarinn þurfti tvisvar að stöðva leik Englands og Búlgaríu í undankeppni EM 2020 vegna kynþáttaníðs. Staðan var 2-0 fyrir Englandi og um hálftími liðinn af leiknum þegar leikurinn var stöðvaður í fyrsta skipti. Harry Kane ræddi við dómara leiksins, Ivan Bebek, í nokkrar mínútur áður en vallarþulurinn tilkynnti að leikurinn yrði stöðvaður ef áhorfendurnir héldu áfram. Blaðamaður BBC á vellinum taldi að Raheem Sterling hafi verið fórnarlamb níðsins frá áhorfendunum. Þegar liðið var á seinni hálfleikinn var leikurinn stöðvaður í annað skipti. Bebek átti langt samtal við Gareth Southgate og Harry Kane en ákveðið var að halda leik áfram. Stór hópur af stuðningsmönnum Búlgaríu, klæddir svörtu frá toppi til táar, yfirgaf völlinn. Samkvæmt aðgerðaáætlun UEFA hefði dómarinn getað sagt leikmönnum að yfirgefa völlinn þegar stöðva þurfti leikinn í annað skipti en samkvæmt fréttamönnum BBC er talið að Southgate hafi ákveðið að halda leik áfram. BBC segir stuðningsmenn Búlgaríu hafa gert nasistabendingar, verið með apahljóð og kallað níð í átt að leikmönnum Englands, þá helst Sterling. Staðan í leiknum þegar þetta er skrifað er 4-0 fyrir England.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Sara Björk komin heim Sport Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Körfubolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Fleiri fréttir Grikkir gerðu Svíum grikk á lokasekúndum leiksins Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Óvíst hver tekur við af Schmeichel Sara Björk snýr heim í Hauka FIFA tók U-beygju og bannar vatnsflöskur „Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri „Þetta voru ótrúlegir dagar, en líka alveg magnaðir dagar“ „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira