Minni arðsemi Arion banka á þriðja ársfjórðungi Kjartan Kjartansson skrifar 30. október 2019 22:17 Afkoma Arion var undir væntingum og er það rakið til niðurfærslna á félögum sem bankinn reynir að selja. Vísir/Vilhelm
Arðsemi eigin fjár samstæðu Arion banka var um 0,7 prósentustigum minni á þriðja ársfjórðungi en á sama tímabili í fyrra og nam hagnaðar hennar um 800 milljónum króna, um 300 milljónum minna en í fyrra. Í árshlutareikningi bankans kemur fram að hagnaður af áframhaldandi starfsemi hafi þó hækkað frá fyrra ári. Í tilkynningu um árshlutareikninginn sem bankinn sendi frá sér í dag kemur fram að arðsemi eigin fjár var 1,6% á þriðja ársfjórðungi 2019 samanborið við 2,3% á sama tímabili árið 2018. „Hagnaður af áframhaldandi starfsemi nam 3,8 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi og 8,8 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum 2019, samanborið við 1,3 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi 2018 og 6,8 milljarðar króna fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2018. Arðsemi eigin fjár af áframhaldandi starfsemi var um 8,5% á þriðja ársfjórðungi og 6,5% á fyrstu níu mánuðum ársins 2019. Dótturfélögin Valitor Holding, Stakksberg og TravelCo eru skilgreind sem eignir til sölu. Heildareignir samstæðunnar námu 1.213 milljörðum króna í lok september 2019 samanborið við 1.164 milljarða króna í árslok 2018. Lán til viðskiptavina lækkuðu um 21,3 milljarða króna eða 3% og er það sagt í samræmi við auknar áherslur bankans á arðsemi fremur en lánavöxt. Eigið fé nam 196 milljörðum króna, samanborið við 201 milljarð króna í árslok 2018. Eiginfjárhlutfall bankans, að teknu tilliti til afkomu á þriðja ársfjórðungi, var 23,6% í lok september 2019 en var 22,0% í árslok 2018. Hlutfall almenns eiginfjárþáttar 1, að teknu tilliti til afkomu á þriðja ársfjórðungi, nam 21,6% í lok september 2019, samanborið við 21,2% í árslok 2018,“ segir í tilkynningunni.
Íslenskir bankar Markaðir Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira