Jón Þór Birgisson, eða Jónsi í Sigur Rós, hefur auglýst tíu eignir sínar við Spítalastíg í miðborg Reykjavíkur til sölu. Núverandi heildarfasteignamat lóða og mannvirkja er rétt rúmar 300 milljónir króna, en á eignunum hvílir kyrrsetningargerð tollstjóra sem nemur 638 milljónum króna.
Eignirnar voru kyrrsettar af sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu í desember 2017 að kröfu tollstjóra vegna meintra skattalagabrota meðlima Sigur Rósar. Málinu var vísað frá Héraðsdómi Reykjavikur í byrjun síðasta mánaðar á grundvelli laga um tvöfalda refsingu. Málinu hefur verið vísað til Landsréttar og eru eignir liðsmanna Sigur Rósar áfram kyrrsettar þangað til dómstóllinn tekur málið fyrir. Það á jafnt við um fyrrnefndar eignir Jóns Þórs við Spítalastíg, sem og einbýlishús trommarans Orra Páls Dýrasonar í Skerjafirði sem einnig hefur verið sett á söluskrá.
Á fasteignavef Vísis er eignum Jónsa við Spítalastíg lýst sem „athyglisverðum fjárfestingarkosti í miðbænum.“ Eins og sakir standa séu 8 skráðar íbúðir í húsunum og 12 útleigurými í notkun; ýmist 2ja og 3ja herbergja í búðir auk stúdíóíbúða. Flestar íbúðirnar eru sagðar í góðu ástandi og að margt hafi verið endurnýjað. Ekkert verð er sett á eignirnar heldur er óskað eftir tilboðum.

Í fyrsta lagi er um að ræða þrjár íbúðir við Spítalastíg 4B en húsið var byggt árið 1903. Samanlagt fasteignamat íbúðanna þriggja er 106,9 milljónir króna.
Í öðru lagi er um að ræða fjórar íbúðir í húsi við Spítalastíg 6 sem byggt er árið 1904. Eru þær íbúðir metnar á samtals 133,7 milljónir króna.
Í þriðja lagi er svo um ræða lítið raðhús við Spítalastíg 4 sem byggt var árið 1946 og er metið á tæpar 29,5 milljónir króna.
Auk þessa íbúðarhúsnæðis við Spítalastíg eru eignirnar Spítalastígur 6A og Spítalastígur 4A í eigu Jónsa en í báðum tilfellum er um að ræða íbúðarlóðir, sú fyrri er 301 fermetri að stærð og sú síðari 325 fermetrar. Lóðin við Spítalastíg 6A er metin á rúmlega 13,5 milljónir króna og lóðin á Spítalastíg 4A metin á 16,6 milljónir króna.
Kyrrsetning eigna Jónsa nemur alls 638 milljónum króna og ná til ofantaldra fasteigna auk tveggja bifhjóla, tveggja bifreiða, sex bankareikninga og hlutafjár í þremur fyrirtækjum. Kyrrsetningin tekur jafnframt til þriggja annarra fasteigna; við Fischersund 3, Eyrarbrautar 19 í Árborg og helmingshlutar í Bergstaðastræti 22.
Samkvæmt upplýsingum frá fasteignasala er ein leið í söluferli sem þessu að lögmenn viðkomandi útfylla yfirlýsingu um leyfi til afléttingar kyrrsetningunni gegn greiðslu andvirðis, eins og um hefðbundið fjárnám væri að ræða. Í þessu tilfelli væri það greiðsla til tollstjóra sem myndi þá fara með vörslu þessa andvirðis þar til niðurstaða fæst í Landsrétti. Andvirði eignarinnar þyrfti að standa undir upphæð kyrrsetningarinnar.
Nánar má fræðast um eignirnar á Spítalastíg á fasteignavef Vísis. Fréttin var uppfærð með nánari upplýsingum um söluferlið.


