Hafði verið látinn í íbúð í Stokkhólmi í þrjú ár Kristín Ólafsdóttir skrifar 19. nóvember 2019 23:33 Maðurinn bjó í Stokkhólmi. Vísir/getty
Karlmaður fannst látinn í íbúð í Södermalm-hverfinu í Stokkhólmi, höfuðborg Svíþjóðar, á mánudag. Talið er maðurinn hafi verið látinn í íbúðinni í þrjú ár áður en hann fannst. Lögregla í Stokkhólmi dregur ályktanir sínar m.a. af póstinum sem hafði borist manninum og matnum sem fannst í ísskáp hans. Þá er dagbók mannsins sögð benda til þess að hann hafi látist fyrir um það bil þremur árum. Grunsemdir vöknuðu meðal nágranna mannsins þegar ekkert hafði sést til hans í langan tíma. Nágrannarnir höfðu samband við leigusalann og síðar var haft samband við lögreglu. Haft er eftir Viktori Adolphsson, lögreglumanni í Södermalm, í miðlinum The Local að kveikt hafi verið á bæði ljósi og útvarpi þegar lögregla kom á vettvang. Maðurinn var nokkuð aldraður, að sögn lögreglu. Gengið er út frá því að andlát hans hafi ekki borið að með saknæmum hætti.Svipað mál kom upp á Spáni í síðasta mánuði. Þar komu lögregla og sjúkralið að konu látinni í íbúð í austurhluta Madrídar. Talið er að konan hafi látist 2004 og lík hennar því verið í íbúðinni í fimmtán ár.
Svíþjóð Mest lesið Tveggja stafa frost í kortunum og sundlaugar gætu þurft að loka Innlent Lygileg atburðarás í Landsbankanum Innlent Sjálfstæðismönnum brugðið yfir mögulegri frestun landsfundar Innlent Verið að athuga frekari þvingunaraðgerðir Innlent Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Erlent Kyrrðarstund í Árbæjarkirkju vegna drengsins sem lést á Ítalíu Innlent Framkvæmdastjóri Hagkaups furðar sig á heimsókn lögreglu Innlent Spennan magnast fyrir fundi sem óvænt á að fresta Innlent Jólagjafirnar í ár hittu beint í mark Innlent Rann á snjóruðningstæki og bíllinn óökuhæfur Innlent Fleiri fréttir „Svarta ekkjan“ fannst látin Tíu ára drengur lést eftir bílslys á Ítalíu Barn meðal látinna í rútuslysi Þýska sambandsþingið leyst upp Fyrrverandi forsætisráðherra Indlands látinn Ákæra líka starfandi forseta til embættismissis Hættulega heitir dagar fleiri og mannskæðari en áður Framkvæmdastjóri WHO staddur á flugvelli í Jemen þegar Ísraelar gerðu árás Rússar vara við því að hrapað sé að ályktunum áður en rannsókn lýkur Skip úr skuggaflotanum hægði grunsamlega mikið á sér Slóvakar vilja hýsa friðarviðræður Rússlands og Úkraínu Tuttugu ár frá mannskæðustu náttúruhamförum aldarinnar Margt bendi til að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Rússneskt olíuflutningaskip í nágrenni sæstrengsins þegar hann rofnaði Stuðningsmenn Assad drápu fjórtán ráðuneytisstarfsmenn Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Girnist Panama-skurðinn, Grænland og Kanada Alls kyns jól um allan heim Um helmingur farþega komst lífs af Rússar fagna vel heppnaðri árás á orkuinnviði Úkraínu Þau kvöddu á árinu 2024 Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Samstarfsmaður Escobar frjáls ferða sinna Kraumar í fjarhægriflokknum sem árásarmaðurinn studdi Clinton lagður inn á sjúkrahús Lýsti yfir sakleysi sínu Grunur um alvarlega misþyrmingu barna Sjá meira