Þurfa ekki að yfirgefa hótelgarðinn til að fara á æfingu Óskar Ófeigur Jónsson í Antalya skrifar 11. nóvember 2019 11:00 Mynd frá Antalya sem er hluti af tyrknesku ríveríunni á suðurstönd Tyrklands. Getty/ Orhan Cicek
Leikmenn íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu hafa ekki yfir neinu að kvarta hér í Antalya þar sem liðið hefur sett upp búðir sína þar til íslenski hópurinn flýgur til Istanbul fyrir leikinn í undankeppni HM á fimmtudagskvöldið. Hver einasta mínúta er mikilvæg þegar liðið fær svo lítinn tíma fram að leik og þar kemur hótel liðsins í Antalya sterkt inn. Íslensku strákarnir þurfa ekki að eyða neinum tíma í rútuferðir og önnur ferðalög á æfingar sínar. Æfingavöllurinn landsliðsins er nefnilega staðsettur í sjálfum hótelgarðinum. Íslenska liðið gistir í ferðamannaparadís og er með æfingavöllinn á sama stað. Þarna æfa mörg stór félagslið á undirbúningstímabilinu og allt fær toppeinkunn. Strákarnir geta líka farið í golf á einkagolfvelli hótelsins, kíkt í tennis, farið í nudd, legið við sundlaugabakkann eða kíkt á ströndina sem er aðeins nokkrum metrum frá sundlaugagarðinum. Það sem skiptir líka máli að þeir þekkja staðinn og það er gott að geta gengið að hlutum vísum þegar tíminn er ekki með þér í liði. Íslenska liðið var nefnilega á þessu sama hóteli í Antalya þegar liðið undirbjó sig fyrir útileikinn við Tyrki fyrir tveimur árum. Sá leikur var í undankeppni HM 2018 og vannst frækinn sigur.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ Íslenski boltinn Þjálfari Patriots í leynilegu ástarsambandi með blaðamanni í mörg ár Sport Stjörnurnar mættu með gufupotta til að hita takkaskóna Fótbolti Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn Ítalía myndi ekki þiggja boðsmiða á HM Fótbolti „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ Íslenski boltinn „Fólk má hafa sínar skoðanir“ Íslenski boltinn Talar stöðugt við Kristófer Acox: „Hræddur við að verjast mér“ Körfubolti Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Enski boltinn Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea Enski boltinn Fleiri fréttir Öll mörkin í Bestu: Hetjustund Óskars, Valsarar í stuði og tvö draumamörk Stjörnurnar mættu með gufupotta til að hita takkaskóna Ítalía myndi ekki þiggja boðsmiða á HM „Eigum að ganga gjörsamlega frá þeim“ Segir Fabregas að halda sig fjarri „martröðinni“ hjá Chelsea „Fólk má hafa sínar skoðanir“ „Ágætis próf fyrir okkur að fá svona rassskellingu“ „Geðveikt að fá fulla Þórsstúku á nýjum velli“ Daníel gaf Elíasi ástæðu til að fagna Logi sá um sitt en liðsfélagarnir brugðust Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Uppgjörið: Valur - FH 3-0 | Valsmenn gengu frá FH-ingum í fyrri „Lykilmaðurinn“ Kolbeinn úr leik næstu vikurnar Þór Ak. - Fram 1-0 | Aron Birkir hélt markinu hreinu í vígsluleiknum Aron pirraður: „Algjör óþarfi“ „Tölum saman eftir sex mánuði“ „Við litum út eins og þriðji flokkur“ ÍBV - KR 2-6 | Hrafnar fljúga Mark ársins í Bestu deildinni komið? Yamal felldi tár en ætti að ná HM Kallar eftir þjónustu: „Hver er annars tilgangurinn?“ Besta-spá kvenna 2026: Sjónarmunur á sterkum liðum Trump vill fá Ítalíu á HM í stað Írans Búið spil hjá Tómasi sem þarf að treysta á félaga sína til að ná titlinum Valtar yfir eigendur Chelsea og segir stuðningsmenn fyllast viðbjóði Sjáðu Haaland skjóta Manchester City á toppinn Furðaði sig á spurningu í viðtali eftir leik: „Fullkomlega ósammála“ Sex vítaspyrnur fóru forgörðum í taugatrekkjandi undanúrslitaleik Börsungar færast nær titlinum Í fyrsta sinn í úrslitaleikinn síðan 2020 Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur - Stjarnan 3-2 | Lentu tvisvar undir en sneru leiknum sér í vil Íslenski boltinn