Boðflennur grunaðar um að hafa drepið brúðgumann fyrir utan Eiður Þór Árnason skrifar 19. desember 2019 07:30 Bræðurnir Rony Aristides Castaneda Ramirez og Josue Daniel Castaneda Ramirez eru grunaðir um morðið. Vísir/AP
Tveir bræður eru grunaðir um að hafa drepið brúðguma í Kaliforníuríki í Bandaríkjunum síðasta laugardag. Atvikið átti sér stað á giftingardegi hins látna stuttu eftir að brúðkaupsveislunni lauk. Bræðurnir sem eru 28 ára og 19 ára gamlir hafa verið ákærðir fyrir morðið á Joseph Melgoza og líkamsárás á tvo aðra menn, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í borginni Chino. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að Melgoza hafi látist eftir höfuðhögg. Ekki kemur fram hvaða vopn mennirnir notuðu þegar þeir réðust á hann en fram kemur í gögnum lögreglu að hinir mennirnir tveir hafi verið barðir með hafnaboltakylfum. Melgoza giftist eiginkonu sinni Esther Bustamante, einungis nokkrum klukkustundum áður en bræðrunum er gert að hafa ráðist á hann. Andy Velasquez, bróðir Melgoza, segir í samtali við CNN að mönnunum tveimur hafi ekki verið boðið í brúðkaup þeirra hjóna. Hann segist muna eftir því að hafa séð þá í brúðkaupsveislunni en að þeir hafi síðar yfirgefið hana eftir að aðili gaf sig á tal við þá. Eftir að veislunni lauk segir hann að bræðurnir hafi snúið aftur og fljótlega hafi slagsmál brotist út í húsasundi á bak við veislusalinn. Lögreglan fullyrðir að þar hafi þeir ráðist á Melgoza og hina tvo mennina. Þegar lögreglan var komin á vettvang var brúðguminn horfinn en hann fannst síðar við leit lögreglu í bakgarði íbúðarhúss. Hann var þá fluttur sjúkrahús þar sem hann lést af áverkum sínum. Lögreglan telur að engin tengsl séu á milli árásarmannanna og brúðgumans. Ekki er enn vitað hvað mönnum gekk til.
Bandaríkin Mest lesið Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Vilja hækka samræðisaldur Innlent Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Erlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Fleiri fréttir Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Sjá meira