Norska ríkisolíufélagið Equinor, sem áður hét Statoil, hefur fallið frá áformum um að byggja olíumiðstöð á Veidnes í Norður-Noregi. Forystumenn sveitarfélaga og atvinnulífs í Finnmörk, nyrsta fylki Noregs, hafa brugðist ókvæða við, sakað olíufélagið um svik og blekkingar og krafist þess að Stórþingið og ríkisstjórnin grípi í taumana sem aðaleigandi Equinor. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2.

Veidnes liggur utan við Honningsvåg, nyrsta bæ Noregs. Olíumiðstöð þar var ætlað að taka við olíu frá nýjum vinnslusvæðum í Barentshafi um neðansjávarlögn.
Það var árið 2013 sem ráðamenn Statoil völdu Veidnes við mikinn fögnuð heimamanna, sem sáu fram á mikla uppbyggingu og fjölgun hálaunastarfa í því fylki Noregs sem búið hefur við mesta fólksfækkun á undanförnum árum.
Síðastliðinn föstudag tilkynntu Equinor og samstarfsfélög þess hins vegar að hætt hefði verið við olíumiðstöðina vegna of mikils kostnaðar. Þess í stað yrði olían flutt með skipum beint á markað frá Johan Castberg-vinnslusvæðinu í Barentshafi.

Þegar Statoil lýsti því fyrst yfir fyrir fimm árum að það hyggðist skoða aðra lausn en olíumiðstöð í landi sögðu ráðamenn í Norður-Noregi að þá mætti allt eins láta olíuna kyrrt liggja í Barentshafi.
„Þetta eru gríðarleg vonbrigði. Hreinlega allir í Finnmörk, stjórnmálamenn, atvinnulífið, allt samfélagið, hafði væntingar um uppbyggingu. Okkur líður eins og við höfum verið svikin. Við höfum verið blekkt,“ segir Jan Olsen, oddviti Nordkapp, í viðtali við NRK.

Aðrir forystumenn í Norður-Noregi taka í sama streng. Frode Alfheim, fulltrúi samtaka orkuiðnaðarins, rifjar upp að þegar norska Stórþingið samþykkti olíuvinnslu á Johan Castberg-svæðinu hafi helstu rökin einmitt verið jákvæð áhrif á samfélögin. Stórþingið hafi undirstrikað mikilvægi þess að olíumiðstöð yrði byggð upp á Veidnesi.
Kristina Hansen, núverandi fylkisráðsmaður og fyrrverandi oddviti Nordkapp, sakar olíumálaráðherrann og ríkisstjórnina um svik.
„Þau hafa þingmeirihluta á bak við sig og hefðu getað skipað Equinor að byggja olíumiðstöðina,“ segir Kristina, sem er Færeyingur.

Jonas Gahr Støre, formaður Verkamannaflokksins og leiðtogi stjórnarandstöðurinnar á Stórþinginu, gagnrýnir einnig ákvörðunina og segir hana geta dregið úr stuðningi norsks almennings við olíuiðnaðinn.
Hann sakar Solberg-ríkisstjórnina um að hafa ekki lagt sig fram um að skapa þau skilyrði sem þurfti. Sögulegt tækifæri glatist til iðnaðaruppbyggingar og fjölgunar starfa í Finnmörk.
„Norsk orka tilheyrir samfélaginu og á að skapa verðmæti og störf um allt land. Ef stjórnvöld og fyrirtæki skilja það ekki setja þau stuðning þjóðarinnar við atvinnugreinina í hættu,“ segir Støre.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2 með grafísku myndbandi af olíumiðstöðinni: