Herjeppinn sem átti að sigra heiminn Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 23. maí 2020 08:00 Þessi Hummer H3 var fyrir utan bílasölu í Detroit á meðan fjármálakerfið hrundi árið 2008. Óljóst er hvar bíllinn er í dag. EPA/Rob Widdis
Trúlega eru fáar bifreiðar jafn einkennandi fyrir aldamótaárin eins og hinn tröllvaxni Hummer. Þá mátti gjarnan sjá stórstjörnur á borð við Britney Spears, Tupac, Arnold Schwarzenegger og Harry Kewell keyra um á þessum fokdýra jeppa. Þessir milljónatrukkar rekja ættir sínar aftur til herjeppans Humvee og var ætlað, líkt og heppnaðist svo vel hjá Jeep, að gefa almenningi tækifæri á að kaupa götuútgáfur af sígildum hermaskínum. Hummer flaug hátt um tíma en fataðist flugið að lokum og á morgun er liðinn áratugur frá því framleiðslu var hætt og skellt var í lás. Hvað fór eiginlega úrskeiðis? Sjónvarpsstjarna Sagan hefst á níunda áratugnum. Jeep-bílar bandaríska hersins gátu ekki, samkvæmt Business Insider flutt fólk og frakt í stórum stíl og gerði herinn því stærðarinnar samning við AM General um framleiðslu svokallaðra HMMWV-bifreiða (High Mobility Multipurpose Wheeled Vehicles). Þessir bílar voru síðar kallaðir Humvee. Arnold Schwarzenegger er mögulega helsti aðdáandi Hummer-bílanna. Hér sést hann fylla á fyrsta vetnis-Hummerinn árið 2004. EPA/Brendan McDermid Humvee-bílarnir nutu góðs af því hversu miklu var sjónvarpað frá Persaflóastríðinu. Leikarinn og síðar ríkisstjórinn Arnold Schwarzenegger hreifst af þessum tryllitækjum og vildi kaupa eintak en fékk ekki. Hann bað þá AM General að framleiða sams konar bifreiðar fyrir hin almenna neytanda. Framleiðandinn hlustaði á Schwarzenegger og varð leikarinn tröllvaxni sá fyrsti til þess að fá eintak af nýja bílnum, Hummer, sem var svo settur í sölu. Verðmiðinn var hundrað þúsund dalir. Hollywood Bílinn var níðþungur og eyddi því ansi miklu eldsneyti. Það skipti reyndar ekki neinu máli enda var lítrinn ekkert sérstaklega dýr í Bandaríkjunum á þessum tíma. General Motors keypti nafnið og hönnunina af AM General árið 1999 og upp úr því jókst salan gríðarlega. Business Insider sagði frá því í umfjöllun sinni um Hummer í febrúar að árin 1999 og 2000 hafi Hummer-bifreið verið áberandi í 32 Hollywood-myndum. Þessi tenging við herinn, og áhugi fræga og ríka fólksins á Hummer, dreif svo áfram áhuga almennra borgara og lífið hefur trúlega verið nokkuð gott fyrir framleiðendur bílsins á þessum tíma. Síðar komu á markað nýrri týpur, H2 og H3, sem seldust einnig nokkuð vel. Hummer-limmósínan naut auðvitað nokkurra vinsælda. Þessi var í eigu kínversks auðjöfurs í Peking. EPA/Adrian Bradshaw Fallið Enginn er konungur að eilífu og nokkrir samverkandi þættir urðu til þess að þetta tákn bandarískrar ofneyslu og öfga féll af sínum stalli. Fyrst má nefna hörð mótmæli umhverfissinna gegn bifreiðinni. Chicago Tribune greindi frá því árið 2003 að meintir umhverfisskæruliðar hefðu ítrekað ráðist á Hummer-bíla og skemmt þá. Þessi spellvirki og almenn mótmæli bitnuðu á orðspori Hummer og gætu vel hafa minnkað eftirspurnina. Þyngst vegur auðvitað fjármálahrunið 2008. General Motors, sem þá átti Hummer, kom einstaklega illa út úr hruninu. Félagið stefndi í gjaldþrot árið 2009 áður en stjórnvöld komu því til bjargar. Á þessum tímapunkti átti General Motors fjölda vörumerkja og þrátt fyrir Hollywood-ímyndina var Hummer einfaldlega ekki á meðal þeirra sem sköpuðu fyrirtækinu mestar tekjur. Salan hafði farið minnkandi undanfarin ár, meðal annars vegna hækkandi eldsneytisverðs. General Motors reyndi því að selja Hummer-vörumerkið til Kína. Viðræður við fyrirtækið Tengzhong gengu ekki upp og að endingu var ákveðið að síðasti kaflinn í Hummer-sögunni væri skrifaður. Framleiðslu var hætt þann 24. maí árið 2010. Hummer snýr aftur Eða hvað? Nú er útlit fyrir að Hummer rísi eins og fönix úr öskunni. Fyrr á árinu kynnti GMC, dótturfyrirtæki General Motors, nýjan GMC Hummer EV. Áhyggjur af eldsneytisnotkun ættu að heyra sögunni til enda er um raftrukk að ræða. Til stóð að bíllinn yrði opinberlega kynntur til sögunnar síðasta miðvikudag en vegna kórónuveirunnar þurfti að fresta öllu slíku. Enn er þó stefnt á að bíllinn fari í almenna sölu á næsta ári. Ekki er gott að segja hvort Hummer EV nái sömu hæðum og fyrirrennararnir né hvort Arnold Schwarzenegger ætli að fá sér eitt stykki. Hann á reyndar rafmagns-Hummer nú þegar, lét breyta H1 í rafbíl fyrir nokkrum árum.
Bílar Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Sjá meira