Skimun á landamærunum lágmarkar áhættu en eyðir henni ekki Kjartan Kjartansson skrifar 2. júní 2020 15:36 Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, mælir með skimun á landamærunum, vottorðum fyrir veikindum eða sýnatöku og sóttkví til að fyrirbyggja að ferðamenn beri með sér smit til Íslands þegar slakað verður á ferðatakmörkunum 15. júní. Vísir/Vilhelm
Sóttvarnalæknir mælir með því að stefnt verði að því að hefja skimun ferðamanna fyrir kórónuveiru á Keflavíkurflugvelli sem fyrst til að reynsla fáist af henni á meðan ferðamannastraumur er enn ekki mikill. Í minnisblaði til heilbrigðisráðherra segir sóttvarnalæknir skimunina draga úr áhættu á að smitaðir ferðamenn komi til landsins en komi ekki algerlega í veg fyrir það. Ríkisstjórnir ætlar að aflétta ferðatakmörkunum sem hafa verið í gildi vegna kórónuveirufaraldursins og hefja skimun fyrir veirunni á Keflavíkurflugvelli 15. júní. Þá geta ferðamenn valið að láta taka úr sér sýni á flugvellinum eða skila inn vottorði í stað þess að fara í fjórtán daga sóttkví. Í minnisblaði Þórólfs Guðnasonar, sóttvarnalæknis, til Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra, útilokar hann aðra kosti um takmarkanir á komu ferðamanna til landsins, þar á meðal algera opnun og lokun landamæranna, heilsufarsskoðun fyrir eða við komu til landsins og að ferðamenn framvísi vottorði með niðurstöðum úr mótefnaprófi. Sóttvarnlæknir telur fjórtán daga sóttkví áfram verða eina mikilvægustu aðferðina til þess að hindra komu veirunnar til landsins. Hann telur einnig að bjóða eigi ferðamönnum upp á þann möguleika að sýna vottorð um yfirstaðin veikindi af völdum Covid-19 sem undirskildi ferðamenn þá frá frekari takmörkunum á landamærum Íslands. Þá eigi einstaklingar að geta lagt fram opinbert vottorð frá heimalandi sínu um neikvæða niðurstöðu sýnatöku sem sé ekki eldra en fjögurra daga gamalt og verða þá undanþegnir frekari takmörkunum hér á landi. Niðurstaða skimunar getur verið neikvæð fjórum dögum eftir smit Varðandi skimun með svonefndu kjarnsýrumögnunarprófi (PCR) telur sóttvarnalæknir til að stefnt verði að því að hefja skimunina á landamærunum 15. júní og að stefnt verði að því að vinnan standi yfir í að minnsta kosti sex mánuði með möguleika á endurskoðun á tímabilinu og að aðgerðin verði skilgreind sem sóttvarnaráðstöfun. Leggur hann til að leitað verði strax til Íslenskrar erfðagreiningar um aðstoð við greiningu sýna og upplýsingatæknimál. Varar sóttvarnalæknir þó við því að PCR-prófin útrými ekki allri hættu á að ferðamenn beri með sér smit til landsins. Slík mæling hjá einkennalausum einstaklingum sé ekki óyggjandi til að greina veiruna. Einkennalaus smitberi getur greinst með neikvætt próf á fyrstu fjórum dögunum eftir smit. Margfalt meiri líkur sú þó á því að einstaklingur með neikvætt próf sé raunverulega ekki smitaður. „PCR mæling hjá ferðamönnum sem koma til landsins mun því lámarka áhættuna á því að smitaður ferðamaður komist inn í landið en kemur ekki [algerlega] í veg fyrir slíkt. Jákvæð niðurstaða prófs mun hins vegar geta leitt til frekari rannsókna, t.d. mótefnamælinga, sem munu skera úr um hvort einangrunar sé þörf. Almenn séð mun þurfa að setja sýkta ferðamenn í einangrun og útsetta í sóttkví eins og gert hefur verið við Íslendinga,“ segir í minnisblaðinu. Skimunaraðferðin er nokkuð dýr í framkvæmd, þarf mikla skipulagningu, kaup á tækjabúnaði, bætt húsnæði og aukinn mannafla. Sóttvarnalæknir segir engu að síður þennan upphafskostnað nauðsynlega fjárfestingu sem skili sér til framtíðar. „Ég tel mikilvægt að skimun á landamærastöðvum verði hrint í framkvæmd eigi síðar en 15. júní því mikilvægt er fá reynslu af skimuninni á meðan alþjóðlegur ferðamannastraumur er ekki mikill,“ segir sóttvarnalæknir í minnisblaði sínu. Lokun ekki vænleg og mótefnapróf óáreiðanleg Í minnisblaðinu útilokar sóttvarnalæknir möguleikann á að opna landamærin án takmarkana í bráð. Faraldurinn sé enn í töluverðri útbreiðslu í flestum nálægum löndum og sums staðar í vexti ennþá. Yrði Ísland opnað án takmarkana telur sóttvarnalæknir „næsta víst“ að veiran bæri til landsins, annað hvort með ferðum Íslendinga erlendis eða erlendum ferðamönnum. Alger lokun landamæranna hugnast sóttvarnalækni ekki heldur. Slíkt seinkaði í besta falli því að veiran bærist til landsins um nokkra mánuði. Þá væri óvíst hversu lengi landamærin þyrftu að vera lokuð. Líklega þyrftu þau að vera það þar til veiran yrði útdauð í heiminum, komið yrði á markað virkt bóluefni eða fullnægjandi meðferð en það gæti tekið nokkur ár. „Þessi kostur er því ekki vænlegur fyrir Íslenskt samfélag að mínu mati og myndi valda hér verulegu samfélagslegu og heilsufarslegu tjóni með óvissum ávinningi,“ segir í minnisblaðinu. Heilsufarsskoðun ferðamanna, eins og hitamæling og almenn líkamsskoðun, sem hefur verið notuð á landamærum í sumum löndum ber lítinn árangur og er kostnaðarsöm, að mati sóttvarnalæknis sem mælir ekki með að þeirri aðferð verði beitt á Keflavíkurflugvelli. Mótefnamæling er ekki orðin nægilega áreiðanleg að mati sóttvarnalæknis til að hann telji ráðlegt að treysta niðurstöðum hennar á þessum tímapunkti. „Þetta kann hins vegar að breytast á næstu vikum og mánuðum,“ segir hann.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Heilbrigðismál Ferðamennska á Íslandi Keflavíkurflugvöllur Tengdar fréttir Sóttvarnalæknir mun bera meginábyrgð á skimunum Nú er ljóst að komufarþegum mun standa til boða að fara í sýnatöku á Keflavíkurflugvelli frá og með 15. júní og í framhaldinu á öðrum helstu landamærastöðvum eða framvísa jafngildu vottorði að utan. Annars þurfa þeir að fara í tveggja vikna sóttkví. 2. júní 2020 12:33 Mest lesið Prestur í Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Innlent Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Innlent „Af hverju ertu svona í framan?“ Innlent Segja stutt í samkomulag en sprengjum rignir enn Erlent Eldur í þvottahúsi á Granda Innlent Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Innlent Var að streyma á TikTok þegar hann féll til jarðar og lést Erlent Skoðanabróðir Orbans og Fico vinnur kosningar í Tékklandi Erlent Fjöldi án rafmagns vegna vonskuveðurs í Noregi Erlent Alelda bíll á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Prestur í Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Eldur í þvottahúsi á Granda Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Fokdýrar flugferðir, ögurstund á Gasa og óvenjulegt innbrot Boða íbúafundi vegna mögulegrar sameiningar sveitarfélaganna Alelda bíll á Reykjanesbraut Framkvæmdirnar komi eftir ákall frá íbúum Safnaði í bálköst innandyra en kennir stundarbrjálæði um íkveikjuna Skrítin afstaða BSRB og ASÍ Tekist á um leikskólamál og árásir á Gasa Umfangsmikil flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Rannsaka mögulega stunguárás Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast „Af hverju ertu svona í framan?“ „Algjörlega alveg út í hött“ Umferðin færist inn á íbúðagötur Andar sem eru ekki hér en voru í myndinni þeir sveima og fylgjast með Dugar ekki lengur að dorga og nú þurfi að kasta út neti Vann á öllum deildum leikskólans Segja Rússa heyja stríð við Vesturlönd og síðustu ævidagarnir á Grund „Kópavogsmódelið er ekkert annað en þjónustuskerðing“ Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Fresta framkvæmdum vegna veðurs Sýnist komið að seinni hluta í eldsumbrotum í Sundhnúksgígaröðinni Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Varaformannsslagur í Miðflokknum: Öll vinir og „peppuð“ fyrir landsþingi Stöðfirðingum enn ráðlagt að sjóða vatn vegna mengunar Sjá meira
Sóttvarnalæknir mun bera meginábyrgð á skimunum Nú er ljóst að komufarþegum mun standa til boða að fara í sýnatöku á Keflavíkurflugvelli frá og með 15. júní og í framhaldinu á öðrum helstu landamærastöðvum eða framvísa jafngildu vottorði að utan. Annars þurfa þeir að fara í tveggja vikna sóttkví. 2. júní 2020 12:33