Dúxaði í Verzló og stefnir á rafmagnsverkfræði í King's College Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 3. júní 2020 10:00 Snædís útskrifaðist með 9,73 í einkunn og vann til ýmissa verðlauna þar að auki. Vísir/Aðsend „
Þetta var mjög frábrugðið öllu sem við þekktum og það var svolítið sjokk að fara beint úr dagskóla í 100 prósent fjarnám. Verst í þessu var í rauninni að fá ekki að klára síðustu önnina í Verzló þar sem maður er með vinum sínum þessa síðustu önn og svo eru kannski allir að fara í mismunandi áttir. Þetta er tíminn sem fólk ætlaði að nýta sér til að kveðja,“ segir Snædís Edwald Einarsdóttir, sem útskrifaðist af eðlisfræðibraut úr Verzlunarskóla Íslands og lauk hún náminu með 9,73 í einkunn og varð jafnframt dúx. Hún segir það hafa komið á óvart að nemendur fengju ekkert að koma aftur í skólann. „Þegar samkomubannið var tilkynnt þá fattaði maður ekki að það væri síðasti skóladagurinn. Þegar var farið að líða á samkomubannið þá leit ekki út fyrir að maður væri að fara aftur í skólann.“ Þá segir hún kennsluna að miklu leiti hafa farið fram í gegn um skólakerfið Innu, tölvupóstsamskipti eða jafnvel Facebook. „Það voru einhverjir fundir á Microsoft Teams en ég var í þannig námi að það er mikil stærðfræði og meira eitthvað sem þú getur gert nokkurn vegin sjálfur og spurt svo þegar þess gerist þörf.“ Snædís útskrifaðist ásamt vinkonum sínum úr Verzlunarskóla Íslands á laugardaginn.Vísir/Aðsend Útskriftin sjálf var haldin í húsnæði Verzlunarskólans en stúdentsefnin og fjölskyldur þeirra horfðu á beina útsendingu af útskriftinni á bílastæðinu fyrir utan Verzló. Svo voru bekkirnir kallaðir inn hver fyrir sig þar sem skírteinin og verðlaun voru afhent og segir Snædís stundina hafa verið vel heppnaða. „Þetta var ekkert smá vel heppnað. Við vorum mjög heppin með veður þannig fólk gat verið úti á bílastæði að spjalla og taka myndir. Skólinn greinilega lagði allt í þetta og gerði athöfnina ótrúlega flotta.“ Hún segir leiðinlegt að árgangurinn hafi ekki fengið að halda uppskeruhátíð en það verði vonandi gert seinna í sumar þegar aðstæður leyfa. „Við áttum bókaðan sal en svo gekk það ekki eftir þannig þá var hver og einn bekkur bara með smá partý eftir athöfnina. Svo stefnum við á að halda, dimmisjónið okkar er galakvöld, og við stefnum enn á að halda það einhvern tíma í sumar þegar aðstæður leyfa.“ Þá þurfti að fresta útskriftarferð árgangsins en þau stefndu á að fara til Mexíkó í sumar. „Mér skilst að þau ætli einhver að reyna að fara eftir ár en það komast að sjálfsögðu ekki allir þá,“ segir Snædís. „Flestir vonast til að komast á næsta ári.“ Snædís ásamt foreldrum sínum á útskriftardaginn.Vísir/Aðsend Snædís segir mikinn missi að hafa ekki fengið að kveðja skólann almennilega. „Galadagurinn er síðasti skóladagurinn og þá er pálínuboð með bekknum í skólanum, það eru allir að taka myndir og fólk fær að kveðja almennilega. Þess vegna fannst mér frábært að útskriftin væri í Verzló, þá gat maður aðeins kvatt og bekkirnir útskrifuðust saman og í því fólst ákveðin nánd. Það var fín kveðjustund.“ Snædís stefnir á að fara í nám í rafmagnsverkfræði með stjórnun í King's College í Lundúnum í haust. „Það er planið en það getur verið að það þurfi að frestast aðeins út af Covid en ég er temmilega bjartsýn.“ Hún segist alltaf hafa stefnt á að fara í verkfræði en rafmagnsverkfræðin hafi ekki kallað sérstaklega til hennar fyrr en nýlega. Hana hafi þá alltaf langað að fara til útlanda í nám og Bretland hafi verið prýðilegur kostur vegna nándar við Ísland og vegna tungumálsins.
Skóla- og menntamál Reykjavík Tímamót Dúxar Tengdar fréttir Dúxaði MR með 9,84: „Ég held það sé alltaf einhver söknuður“ „Þetta var mjög frábrugðin önn, þetta kom mjög á óvart. Ég man svo vel eftir því þegar við vorum í skólanum og við vorum að horfa á blaðamannafundinn inni í stofu þegar þetta var tilkynnt um samkomubannið. Ég hélt að við myndum bara koma aftur í skólann, ég var alveg viss um það,“ segir Katla Rut Robertsdóttir Kluvers, dúx í MR. 1. júní 2020 12:33 Mest lesið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Fleiri fréttir Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Sjá meira
Dúxaði MR með 9,84: „Ég held það sé alltaf einhver söknuður“ „Þetta var mjög frábrugðin önn, þetta kom mjög á óvart. Ég man svo vel eftir því þegar við vorum í skólanum og við vorum að horfa á blaðamannafundinn inni í stofu þegar þetta var tilkynnt um samkomubannið. Ég hélt að við myndum bara koma aftur í skólann, ég var alveg viss um það,“ segir Katla Rut Robertsdóttir Kluvers, dúx í MR. 1. júní 2020 12:33