Ofbeldi ungmenna birt á samfélagsmiðlum í auknum mæli Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar 7. júlí 2020 18:58 Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs og ofbeldisvarnarráðs Reykjavíkurborgar seigr ofbeldi meðal ungmenna sem gjarnan er deilt á samfélagsmiðlum mikið áhyggjuefni. Vísir/Vilhelm
Formaður velferðarráðs og ofbeldisvarnarráðs Reykjavíkurborgar segir ofbeldi ungmenna sem gjarnan er deilt á samfélagsmiðlum sé mikið áhyggjuefni. Erfitt geti verið að bregðast við slíku ofbeldi en það sé alveg nýtt á nálinni að ofbeldinu sé dreift á samfélagsmiðlum. Myndbönd af börnum og ungmennum að beita hvort annað ofbeldi eru í dreifingu á netinu og inni á samfélagsmiðlum. Vandamálið er vaxandi og þá sérstaklega að myndböndin séu í dreifingu á samfélagsmiðlum. „Við höfum fengið veður af þessu og héldum fund í vor þar sem við ræddum þessi myndbönd og þessa nýju birtingarmynd á ofbeldi gegn börnum og vorum þar með bæði barnaverndarnefnd og lögregluna og veltum fyrir okkur hvernig er best að bregðast við. Það er auðvitað sláandi að sjá svona og manni bregður en ég held það þurfi bara að taka þetta föstum tökum og læra af þessu og reyna að kynna fyrir þeim að þetta er alvarlegur hlutur,“ segir Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður velferðarráðs og formaður ofbeldisvarnarráðs Reykjavíkurborgar í Reykjavík síðdegis nú í dag. Hún segir ekkert benda til þess að ofbeldi þar sem börn beita önnur börn ofbeldi sé að aukast. Þessi nýja birtingarmynd sé hins vegar eitthvað sem sjáist nú í meira mæli en áður hafi þekkst. „Það kannski flækist fyrir okkur að því leiti að mikið af forvarnarstarfinu er byggt upp í hverfunum, við þekkjum foreldrana og foreldrar kynnast en þetta eru kannski oft krakkar sem börnin þekkja ekki. Þetta flækir aðeins forvarnarstarfið og viðbrögðin í kerfinu,“ segir Heiða. Hún segir það óljóst í mörgum tilvikum hvort börnin tengist þá í gegn um samfélagsmiðla. „Við fengum einmitt lögregluna, sem hefur verið að rannsaka nokkur svona mál og það er oft óljóst hver tengslin eru og hvar þau liggja. Það flækir líka fyrir okkur foreldra ef við ætlum að bregðast við og tala við foreldrana.“ Hún segir mikilvægt að foreldrar séu í góðum tengslum við börnin sín og ræði þessi mál.„Ég held að við öll, foreldrar, þurfum að átta okkur á því að það er mjög margt í gangi hjá börnunum okkar. Bæði á samfélagsmiðlum og ekki á samfélagsmiðlum. Ég held það mikilvægasta sem foreldri sé að vera í góðum tengslum við barnið sitt og tala við það um svona hluti og sem mest og reyna að passa það að fá að vera þátttakandi í þeirra lífi, upp að því marki sem að þau eru tilbúin til.“ Mikilvægt að traust sé til staðar „Ég held að það sé það sem er allra mikilvægast, að maður sleppi ekki alveg af þeim hendinni þegar þau fara inn í unglingsárin og reyna að halda þessu sambandi. Auðvitað að fylgjast með en ég er svo sem ekki að hvetja til þess að foreldrar séu að fylgjast með öllu sem börnin gera, þá er traustið fljótt að fara. Þetta er auðvitað traust og líka kannski að við séum ekki alveg blind á það að okkar börn eru ekkert öruvísi en önnur börn.“ Þá segir hún það erfitt fyrir foreldra að taka á því þegar börn þeirra eru gerendur í slíkum málum. Það sé hins vegar gríðarlega mikilvægt að gerendur fái aðstoð og stuðning rétt eins og þolendur. „Ég held það sé gríðarlega erfitt að takast á við það [að barnið þitt sé gerandi í svona máli]. Ég er ekkert endilega viss um að það sé mikið auðveldara en ef barnið er þolandi. Það er bara gríðarlega erfitt þegar maður kemst að því að börnin manns hafi verið þátttakendur í svona ofbeldi og ég held það sé mikilvægt að ef það gerist að maður taki skrefin út frá því.“ „Maður verður að trúa því stundum að börn gera heimskulega hluti og þau geta gert alls konar hluti og það er hægt að læra af þeim og það er hægt að vinna úr því eins og við höfum talað mikið um með kynferðisofbeldið, að það fái hjálp og fái stuðning og það er hægt að vinna úr svona, hvort sem það er þolandi eða gerandi,“ segir Heiða. Það er mjög mikilvægt varðandi gerendurna að þeir fái líka stuðning og hjálp því það er ekki víst að allir átti sig endilega á því hversu alvarlegt þetta er og hversu slæmar og alvarlegar afleiðingar þetta getur haft. Ég held það sé mikilvægt að við foreldrar ræðum um það og pössum líka að börnin okkar séu ekki að deila svona efni því það gerir líka þessa tegund af ofbeldi vinsælli“ Rætt var við Jón Magnús Kristjánsson yfirlækni á bráðamóttöku um ofbeldi barna í Reykjavík síðdegis í gær. Hægt er að hlusta á viðtalið við Jón í spilaranum hér að neðan.
Ofbeldi gegn börnum Börn og uppeldi Reykjavík síðdegis Reykjavík Tengdar fréttir Tíu ára börn þátttakendur í ofbeldi sem tekið er upp á myndskeið og birt á netinu Myndbönd af ungmennum sem beita önnur ungmenni ofbeldi eru í dreifingu á netinu. Dæmi eru um að 10 ára börn taki þátt í athæfinu. Lögregla lítur málið alvarlegum augum og telur að ofbeldi sé að aukast meðal ungmenna. 5. júlí 2020 18:53 Með velferð barna að vopni Sem nemandi 10. bekkjar í Kársnesskóla í Kópavogi hef ég verið í fjarnámi í tvo mánuði sökum verkfalla og kórónuveirunnar. Mér hefur gengið sæmilega að aðlagast ástandinu en það á ekki við alla. 8. maí 2020 08:30 Mest lesið „Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega“ Innlent „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Innlent „Hef ekki hitt neinn arkitekt sem finnst þetta góð hugmynd“ Innlent Lét högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Innlent Segir viðbrögð Bjarnheiðar vekja „óþægilegar minningar“ Innlent „Ég held að þetta sé ekki bóla“ Innlent Komu göngumönnum í sjálfheldu til aðstoðar Innlent „Það þarf sennilega að moka þennan bíl upp“ Innlent Ákærð fyrir að bana föður og tilraun til að bana móður Innlent Rússnesk herflugvél mætt í Landeyjarnar Innlent Fleiri fréttir „Það er rosalega ljótt að segja þetta en mér líður bara þannig“ Segir viðbrögð Bjarnheiðar vekja „óþægilegar minningar“ „Hef ekki hitt neinn arkitekt sem finnst þetta góð hugmynd“ Komu göngumönnum í sjálfheldu til aðstoðar Rússnesk herflugvél mætt í Landeyjarnar „Ég held að þetta sé ekki bóla“ Kona flutt á spítala eftir fjóhjólaslys Vara við að gangast undir fegrunarmeðferðir hjá óviðurkenndum aðilum „Sjaldan hefur stjórnmálamaður verið hamflettur jafn rækilega“ Lét högg og spörk dynja á foreldrunum í tíu klukkustundir Barst tilkynning um olíustuld í Hafnarfirði „Léleg blaðamennska“ sem byggi á upphrópunum og hatri á atvinnulífi Ítrekað ofbeldi, skelfdur Íslendingur eftir skjálfta og padel-æði „Það þarf sennilega að moka þennan bíl upp“ Leggja stöðvunarkröfu á framkæmdir við Hvammsvirkjun Lögreglan leitar upplýsinga um þennan mann Lögreglan leitar þessara manna Eldur kviknaði í hjúkrunarheimili á Höfn Stöðfirðingar þreyttir á ferðamönnum sem geri þarfir sínar um allan bæ Fagnar tillögu Sigurjóns og segir veiðiráðgjöf Hafró ranga Langþreyttur á bensínbrúsum og „bílakirkjugarði“ Úkraínumenn vilja fá Íslendinga í almannavarnabandalag Risaskjálfti í Kyrrahafi og bensínbrúsabílar í Breiðholti Ákærð fyrir að bana föður og tilraun til að bana móður Skýrsla Guðlaugs Þórs frá 2018: „Aðildarviðræðunum var ekki formlega slitið“ Veðurspáin fyrir helgina að skána Fjallabaksleið syðri lokuð vegna vatnavaxta Engin nóróveira í Laugarvatni Fjöldi ferðamanna slíkur að rotþróin ræður ekki við það Reyndi að skemma bíl og hljóp svo undan lögreglu Sjá meira
Tíu ára börn þátttakendur í ofbeldi sem tekið er upp á myndskeið og birt á netinu Myndbönd af ungmennum sem beita önnur ungmenni ofbeldi eru í dreifingu á netinu. Dæmi eru um að 10 ára börn taki þátt í athæfinu. Lögregla lítur málið alvarlegum augum og telur að ofbeldi sé að aukast meðal ungmenna. 5. júlí 2020 18:53
Með velferð barna að vopni Sem nemandi 10. bekkjar í Kársnesskóla í Kópavogi hef ég verið í fjarnámi í tvo mánuði sökum verkfalla og kórónuveirunnar. Mér hefur gengið sæmilega að aðlagast ástandinu en það á ekki við alla. 8. maí 2020 08:30