Loka Aberdeen eftir mikla fjölgun smitaðra Samúel Karl Ólason skrifar 5. ágúst 2020 12:28 Nicola Sturgeon, forsætisráðherra Skotlands. EPA/FRASER BREMNER
Yfirvöld í Skotlandi hafa gripið til umfangsmikilla sóttvarnaraðgerða og ferðatakmarkana í borginni Aberdeen eftir að þeim sem smitast hafa af Covid-19 hefur fjölgað mjög mikið að undanförnu. Minnst 54 hafa smitast og er óttast að nýja kórónuveiran hafi náð töluverðri útbreiðslu í borginni. Meðal þeirra aðgerða sem verið er að grípa til er að börum og krám verður lokað og sömu sögu er að segja af söfnum, kvikmyndahúsum og annarri sambærilegri starfsemi innanhúss. Íbúum verður meinað fara meira en átta kílómetra frá heimilum sínum og mega þeir ekki fara inn á heimili annarra. Þar að auki hefur fólki verið ráðlagt að ferðast ekki til Aberdeen. Samkvæmt frétt Sky News segir Nicola Sturgeon, forsætisráðherra Skotlands, að ákvörðunin verði endurskoðuð eftir viku. Mögulega verði þær áframlengdar „Það síðasta sem við viljum gera er að endurvekja þessar takmarkanir en faraldurinn er að minna okkur á hve smitandi Covid-19 er,“ sagði Sturgeon. Í Skotlandi hafa minnst 18.781 smitast af Covid-19 og 2.491 hefur dáið. 64 nýsmitaðir greindust á milli daga og þar af 36 í Aberdeen.
Skotland Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Innlent Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Innlent Kristrún tilbúin í aðgerðir Innlent „Vitum ekki hundrað prósent hvað er í þessu“ Innlent Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun Innlent „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Innlent Uppsagnir hjá Klettabæ Innlent Fleiri fréttir Marco Rubio á leið til Íslands Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Sjá meira