Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing tilkynnti í dag félagið hafi tapað 636 milljónum Bandaríkjadala, um 79 milljörðum íslenskra króna, á liðnu ári.
Félagið hefur átt í miklum vandræðum síðustu mánuði eftir að allar vélar af gerðinni 737 MAX voru kyrrsettar í kjölfar tveggja mannskæðra flugslysa þar sem alls 346 fórust.
Þetta er í fyrsta sinn frá árinu 1997 sem Boeing skilar ekki hagnaði. Til samanburðar skilaði flugvélaframleiðandinn 10,5 milljarða Bandaríkjadala hagnaði árið 2018.
Veltan dróst sömuleiðis saman, um heil 24 prósent milli ára, og nam 76,6 milljarða dala, um 9.500 milljarða króna.
Félagið vonast til að hægt verði að fljúga vélunum á ný upp úr miðju ári. Boeing hefur unnið að því að finna lausn á vandamálum vélarinnar, en samkvæmt áætlunum mun kostnaður flugvélaframleiðandans vegna kyrrsetningarinnar nema 18 milljörðum dala, eða um 2.230 milljarða íslenskra króna, að því er fram kemur í frétt New York Times.