Vetrarhátíð var sett í gær þegar listaverkinu Sálumessa jöklanna var varpað á Hallgrímskirkju. Verkið er óður til jökla heimsins og er ætlað að vekja fólk til umhugsunar um hlýnun jarðar. Yfir 150 viðburðir verða í boði í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins um helgina en hátíðinni lýkur á sunnudag. Dagskráin er fjölbreytt og ættu allir aldurshópar að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.
„Ég fékk þá hugmynd í sumar að breyta Hallgrímskirkju í jökul sem er að bráðna. Þetta er óður til jökla heimsins,“ sagði Heimir Hlöðversson listamaðurinn á bak við Sálumessu jöklanna, í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær. Jöklana sýnir hann stóra á Hallgrímskirkju og fer hann líka inn í jöklana svo þetta á að vera „jöklaupplifun einhverskonar,“ sagði listamaðurinn um verkið.
Þessi hátíð ljóss og myrkurs samstendur af þrem meginstoðum: Safnanótt, Sundlauganótt og ljósalist ásamt yfir 150 viðburðum þar sem fjöldi listamanna tekur þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni. Á þriðja tug bygginga á höfuðborgarsvæðinu verða upplýstar í einkennislitum Vetrarhátíðar, grænum og fjólubláum, auk þess sem ljóslistaverk verða á nokkrum lykilbyggingum á höfuðborgarsvæðinu; Hallgrímskirkju, Listasafni Reykjavíkur, Listasafni Íslands, Hörpu og Ráðhúsi Reykjavíkur.

Safnanæturstrætó gengur í dag
Guðmundur Birgir Halldórsson verkefnastjóri hjá Reykjavíkurborg sagði í samtali við fréttastofu í gær að hátíðin væri fyrir alla, hápunktarnir eru meðal annars safnanótt í kvöld, ljósagangan og sundlaugarnótt á sunnudag.
Í dag verður opið frá 18 til 23 í 50 söfnum í öllum þessum sex sveitarfélögum. Gestir hátíðarinnar eru hvattir til að nýta sér sérstakan Safnanæturstrætó sér að kostnaðarlausu. Nánari upplýsingar um leiðarkerfið fyrir þennan Safnanæturstrætó má finna á vef hátíðarinnar. Vagninn mun ganga á milli allra safna á höfuðborgarsvæðinu og auðveldar þannig gestum að heimsækja söfnin og taka þátt í Safnanæturleiknum.
Sundlauganótt verður haldin sunnudagskvöldið 9. Febrúar 2020 en þá verður frítt í sund frá 17:00 til 22.00 í 11 sundlaugum Höfuðborgarsvæðisins. Uppákomur í laugunum verða af margvíslegum toga og munu gestir fá að upplifa einstaka og óvenjulega kvöldstund í mögnuðu myrkri. Ljós, myrkur og gleði verða allsráðandi, þar sem gestir eru hvattir til að taka þátt með því að slaka á og njóta stundarinnar.
Hér má sjá dagskrá Vetrarhátíðarinnar.
Umfjöllun Stöðvar 2 frá því í gær má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.