
Hallgrímskirkja

„Það getur enginn unnið við að laga neitt í svona veðri“
Veðrið hefur leikið íbúa á Stöðvarfirði grátt síðastliðinn sólarhring. Miklar skemmdir eru á húsum og bærinn allur á floti. Hallgrímskirkja slapp með skrekkinn þegar eldingu laust þar niður.

Eldingar víða um land: Litlar sem engar skemmdir í Hallgrímskirkju
Það hefur sést til þrumna og eldinga víða um land, til að mynda á höfuðborgarsvæðinu, í kvöld. Ein elding hafnaði í Hallgrímskirkjuturni.

Ógnaði fólki nærri Hallgrímskirkju
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af manni sem sagður var ógna fólki nærri Hallgrímskirkju. Vitni sögðu hann hafa hrint fólki og hrækt á það.

Nýr biskup tekur við þjóðkirkjunni
Guðrún Karls Helgudóttir var vígð til biskups Íslands í Hallgrímskirkju í dag. Fjöldi fólks tók þátt í athöfninni, þar á meðal íslenskir prestar og biskupar, auk biskupa frá Norðurlöndum, Bretlandi, Wales og Palestínu.

Hengdu Palestínufána á Hallgrímskirkjuturn
Baráttusamtökin No Borders hengdu Palestínufána á Hallgrímskirkjuturn í dag. Var þetta gert til að vekja athygli á framferði Ísraelshers á Gasa og krefja stjórnvöld um aðgerðir í tengslum við Palestínumenn.

Þakklátur og stoltur af samfélaginu
Haldin var svokölluð samverustund fyrir Grindvíkinga og þau sem vildu sýna þeim samhug og styrk í Hallgrímskirkju í dag. Þar sagði Guðni Th. Jóhannesson, forseti, að hann væri þakklátur og stoltur fyrir að búa í samfélagi Íslendinga. Fannar Jónsson, bæjarstjóri Grindavíkur, sagði óvissuna erfiða

Samverustund fyrir Grindvíkinga
Samverustund fer fram í Hallgrímskirkju í Reykjavík fyrir Grindvíkinga og þau sem vilja sýna þeim samhug og styrk. Samverustundin hefst klukkan 17:00 og er hægt að fylgjast með samverustundinni í beinu streymi.

„Það er mikil sorg, ótti og kvíði í fólkinu“
Enn er verið að skoða útfærslu á leik- og grunnskólamálum Grindvíkinga. Bæjarstjórinn segir vinnuna í fullum gangi. Samverustund Grindvíkinga fer fram í Hallgrímskirkju í dag.

Hitti forsetann sinn óvænt við Hallgrímskirkju
Hin tékkneska Katerina Supikova hitti óvænt forseta Tékklands, Petr Pavel, þegar hún var að vinna á Kaffi Loka í miðbæ Reykjavíkur í gær. Kíkti forsetinn í kaffi til hennar en hún segir að þarna hafi hún upplifað kyngimagnaða stund.

Senda Grímseyingum klukkur í stað þeirra sem bráðnuðu
Hallgrímskirkjusöfnuður í Reykjavík hefur safnað fyrir kirkjuklukkum í nýja Miðgarðakirkju í Grímsey eftir að gamla kirkjan varð eldi að bráð í september 2021. Klukkurnar verða til sýnis í kirkjunni næstu vikurnar.

Minningarathöfn um Elísabetu í Hallgrímskirkju á sunnudag
Minningarathöfn um Elísabetu II Bretlandsdrottningu, sem lést í síðustu viku, verður haldin næstkomandi sunnudagskvöld í Hallgrímskirkju.

Hittumst á Skólavörðutúni
Á dögum sem þessum iðar Klambratúnið af lífi. Fólk leggst á grasið með drykki og mat. Börn príla í leiktækjum. Hundar mætast og þefa hvor af öðrum og frisbídiskar lenda í körfum með tilheyrandi hljóðum. Þetta virkar.

„Bæði léttir og um leið smá viðskilnaðarkvíði“
Sigurður Skúlason leikari flutti alla Passíusálmana í Hallgrímskirkju í dag í síðasta sinn. Lesturinn tók rúmar fimm klukkustundir og var Sigurður furðu brattur eftir þetta mikla þrekvirki.

Vottaði rússneskri þjóð sem lent hafi í klóm „sturlaðs einræðisherra“ samúð
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar flutti í kvöld ávarp á friðartónleikum sem haldnir voru í Hallgrímskirkju vegna stríðsins í Úkraínu. Íslenskt tónlistarfólk flutti tónlist fyrir þá sem voru samankomnir í kirkjunni og mótmæltiþar hernaðarbrölti rússneskra stjórnvalda.

Fullt út úr dyrum á friðartónleikum í Hallgrímskirkju
Boðað var til friðartónleika í Hallgrímskirkju klukkan 18 í dag vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar komu fram. Tónleikarnir voru í beinni útsendingu á Vísi.

Ragnar Kjartansson og Kári Stefánsson á friðartónleikum
Boðað hefur verið til friðartónleika í Hallgrímskirkju klukkan 18 á morgun vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Margir af fremstu listamönnum þjóðarinnar koma fram. Tónleikarnir verða í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi.

Ekkert helgihald um áramótin: „Segja má að þetta séu tímamót“
Vegna kórónuveirufaraldursins verður ekkert helgihald í kirkjum landsins um áramótin né annars staðar. Kirkjan segir þetta ekki áður hafa gerst í íslenskri kirkjusögu.

Magnaður flutningur Árnýjar Margrétar í Hallgrímskirkju
Árný Margrét Sævarsdóttir er ung sveitastelpa sem hefur skapað sér nafn sem tónlistarkona á afar skömmum tíma. Hún hafði verið að semja tónlist inn í herberginu sínu á Ísafirði þegar hún komst í samband við tónlistarmanninn Högna Egilsson og boltinn fór að rúlla.

Mótettukórinn söng sinn hinsta söng við Hallgrímskirkju
Mótettukórinn og stjórnandi hans kvöddu Hallgrímskirkju á táknrænan hátt eftir 39 ára starf í kvöld. Stjórnandinn, sem verið hefur kantor og organisti í kirkjunni, hætti störfum í dag vegna deilna vil sóknarnefnd kirkjunnar.

Sóknarnefnd Hallgrímskirkju styður prest og framkvæmdastjórn í máli Harðar tónlistarstjóra
Sóknarnefndin segist hafa fylgst með samningagerð við Hörð Áskelsson tónlistarstjóra og lýsir nú yfir fullum stuðningi við formann, framkvæmdanefnd, framkvæmdastjóra og presta varðandi það hvernig þau hafa haldið á málum.

Tónskáld óttast „menningarslys“ í Hallgrímskirkju
Yfirstjórnendur Þjóðkirkjunnar eru hvattir til þess að grípa í taumana og forða „skelfilegu menningarslysi“ í tónlistarmálum Hallgrímskirkju í ályktun sem aðalfundur Tónskáldafélags Íslands samþykkti í gær. Deilur hafa geisað á milli sóknarnefndar Hallgrímskirkju og tónlistarstjóra hennar.

Guðspjallið spilaði ...
Johann Sebastian Bach hefur stundum verið nefndur fimmti guðspjallamaðurinn. Slíkar tilfinningar vakna með hlustanda í kirkju þegar tónlist hans flæðir þar um hvelfingar, mótettur hans, óratoríur, tokkötur og fúgur.

„Okkur er einfaldlega hent út með skít og skömm“
Mikil reiði ríkir meðal kórfélaga og velunnara Mótettukórsins vegna þess hvernig mál hafa þróast í Hallgrímskirkju sem endaði með starfslokum Harðar Áskelssonar tónlistarstjóra kirkjunnar til fjörutíu ára.

Samskipti við sóknarnefnd kólnandi þar til fraus í hylnum
Brotthvarf tónlistarstjóra Hallgrímskirkju, Harðar Áskelssonar, er tónelskum áfall.

Magnað drónamyndband af flugeldadýrðinni við Hallgrímskirkju
Duglega var skotið upp af flugeldum á höfuðborgarsvæðinu í tilefni áramóta í gærkvöldi. Skotgleðin við Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti náði hámarki í kringum miðnætti en Egill Aðalsteinsson tökumaður fréttastofu náði mögnuðum drónamyndum af flugeldadýrðinni í gær. Myndband Egils má sjá hér fyrir neðan.

Hópamyndun við Hallgrímskirkju í nótt tilkynnt til lögreglu
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um hópamyndun við Hallgrímskirkju á Skólavörðuholti í Reykjavík um klukkan eitt í nótt.

Bendir á að fyrri og seinni bylgjan líkjast í raun Hallgrímskirkju
Ljósmyndarinn Árni Torfason bendir á sérstaklega athyglisverða staðreynd varðandi fyrri og seinni bylgju kórónuveirunnar hér á landi.

Bein útsending: Heimahelgistund í Hallgrímskirkju
Í dag klukkan 17 verður heimahelgistund streymt heim til landsmanna frá Hallgrímskirkju.

Óður til jökla heimsins
Vetrarhátíð var sett í gær og verða 150 viðburðir í boði í öllum sex sveitarfélögum höfuðborgarsvæðisins um helgina.

Nýr sautján hæða hótelturn kallast á við Hallgrímskirkju
Sautján hæða hótelturn verður ein svipmesta bygging miðborgar Reykjavíkur en framkvæmdir eru hafnar á horni Skúlagötu og Vitastígs.