Þrír leikmenn landsliðsins fara ekki með til Belgíu: Valsmenn settu pressu á KSÍ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. ágúst 2020 13:40 Hannes Þór Halldórsson með Guðna Bergssyni, formanni KSÍ. Vísir/Vilhelm
Erik Hamrén, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, valdi 25 leikmenn í hópinn á móti Englandi og Belgíu en ekki 22 því þrír leikmenn fara ekki með landsliðinu í leikinn til Belgíu. Erik Hamrén sagði frá því á blaðamannafundi í dag að þrír leikmenn sem hann valdi í hópinn verða aðeins með í fyrri leiknum á móti Englandi. Leikmennirnir eru markvörðurinn Hannes Þór Halldórsson, varnarmaðurinn Kári Árnason og sóknarmaðurinn Kolbeinn Sigþórsson. Patrik Sigurður Gunnarsson og Alfons Sampsted verða ekki með landsliðinu í Englandsleiknum því þeir þeir verða þá með 21 árs landsliðinu. Báðir koma inn fyrir Belgíuleikinn. Hamrén telur að þeir Kári Árnason og Kolbeinn Sigþórsson hafi ekki skrokkinn í að spila tvo leiki með þriggja daga millibili og að auki að ferðast frá Íslandi til Belgíu í millitíðinni. Erik Hamrén tók líka þá ákvörðun sjálfur að Hannes Þór Halldórsson færi ekki með út til Belgíu. Valsmenn höfðu sett pressuna á KSÍ um að það þyrfti að fresta tveimur leikjum Vals í Pepsi Max deildinni ef Valur ætti að hleypa Hannesi í Belgíuleikinn. Hamrén ákvað því að skilja Hannes Þór Halldórsson eftir og kalla frekar á Patrik Sigurður Gunnarsson í stað þess að setja þá pressu á mótnefnd KSÍ að reyna að koma þessum tveimur Valsleikjum fyrir þegar þegar er orðið mjög þröngt um alla leiki á Íslandsmótinu.
Þjóðadeild UEFA Pepsi Max-deild karla Valur KSÍ Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira