Skoðun

Borgin Þrándur í Götu sam­göngu­sátt­mála

Egill Þór Jónsson skrifar

Þann 9. september birti Jórunn Pála Jónasdóttir varaborgarfulltrúi athyglisverða grein, en þar fjallar hún um skipulagsákvarðanir borgarinnar í tengslum við Samgöngusáttmálann. Þar er vakin athygli á því að borgin er ítrekað að skipuleggja framkvæmdir ofan í hálsmálið á framkvæmdum sem kveðið er á um í sáttmálanum. Einkennileg staða hefur til dæmis skapast í kringum lagningu Arnarnesvegar, en borgin hefur málað sig út í horn í því máli.

Samgöngusáttmálinn

Tæplega ár er síðan Reykjavíkurborg, ríkið og önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu undirrituðu svokallaðan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Samkomulagið felur meðal annars í sér uppbyggingu á samgönguinnviðum á höfuðborgarsvæðinu til fimmtán ára. Ein af framkvæmdunum sem flokkaðar voru sem flýtiframkvæmdir er lagning Arnarnesvegar, með mislægum gatnamótum við Breiðholtsbraut. Sáttmálinn kveður á um að að framkvæmdir við lagningu vegarins hefjist árið 2021, á næsta ári.

Vetrargarður

Til kynningar hjá borginni er nýtt hverfisskipulag Breiðholts. Ein af áhugaverðustu hugmyndunum þar er Vetrargarður við skíðabrekkuna ofan við Jafnasel. Hugmyndin er hugsuð sem skíðabrekka fyrir skólabörn og ungt fólk allt árið um kring. Þetta er líklega sú hugmynd í nýja hverfisskipulaginu sem allir Breiðhyltingar geta sammælst um. Nú þegar hugmyndir um Vetrargarð í Breiðholti eru komnar fram er þó tvísýnt hvaða áhrif það mun hafa á lagningu Arnarnesvegar.

Borgargarður Elliðaárdals

Meirihluti borgarstjórnar samþykkti fyrr á árinu 2020 nýtt deiliskipulag fyrir Borgargarðinn Elliðaárdal. Tilgangur deiliskipulagsins sneri að því að vernda og varðveita náttúrufar í dalnum um leið og tækifærum til útivistar í dalnum yrði fjölgað. Deiliskipulagið var umdeilt og þá sérstaklega mörk dalsins. Stór hluti dalsins hafði verið klipptur út svo hægt væri að byggja í dalnum. Hins vegar var ekki gert ráð fyrir þeim gatnaframkvæmdum sem borgin hafði skuldbundið sig til þess að fara í samkvæmt Samgöngusáttmála.

Borgin í flókinni stöðu - Pólitískt sjálfskaparvíti

Meirihlutinn í borginni og borgarstjóri skrifuðu undir sáttmála þess efnis að fyrrnefndur Arnarnesvegur yrði lagður, með mislægum gatnamótum við Breiðholtsbraut. Þetta hefur alltaf legið fyrir samkvæmt áætlunum Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) og sem hluti af aðalskipulagi Reykjavíkur. Það er mikilvægt að staðið sé við samninga við önnur sveitarfélög. Hins vegar virðist sú aðferð meirihlutans að stilla málum upp á móti hvort öðru að vera að koma í bakið á þeim.

Nú þegar tillögur að lagningu Arnarnesvegar hafa verið kynntar er ljóst að sú útfærsla, sem boðuð var með samgöngusáttmálanum sem stofnbraut með mislægum gatnamótum, skarast á við deiliskipulag Elliðaárdals. Einnig er ljóst að ákveði borgin að setja inn ljósastýrð gatnamót við Breiðholtsbraut, ógnar það fyrirhuguðum Vetrargarði og brýtur um leið samgöngusáttmálann. Borgin hefur því málað sig út í horn í þessu máli en það eru afleiðingar ákvarðanna núverandi meirihluta og ekki gott að sjá hvernig hægt verður að leysa þá stöðu sem upp er komin.

Höfundur er borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.




Skoðun

Sjá meira


×