Kardinála í Páfagarði gert að segja af sér Kjartan Kjartansson skrifar 25. september 2020 14:07 Becciu kardináli var einn æðstu ráðamanna Páfagarðs og hefði tekið þátt í að velja næsta páfa. Vísir/EPA
Háttsettur embættismaður í Páfagarði sagði óvænt af sér í dag vegna ásakana um að hann hafi gefið bróður sínum fé frá kaþólsku kirkjunni. Hann segir að Frans páfi hafi skipað sér að stíga til hliðar en neitar því að hafa gert nokkuð saknæmt. Giovanni Angelo Becciu, kardináli, hefur verið náinn ráðgjafi Frans páfa. Hann átti þátt í umdeildum fasteignaviðskiptum þar sem fé kirkjunnar var notað til þess að fjárfesta í lúxusíbúðum í London, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Rannsókn stendur yfir á fjárfestingunum en fé kirkjunnar var veitt í gegnum aflandsfélög og skúffufyrirtæki. Afar fátítt er að embættismenn í Páfagarði segi af sér. Becciu segir sjálfur að honum hafi verið ýtt út um dyrnar vegna þess að hann væri grunaður um að hafa notað fé kirkjunnar til að hjálpa bróður sínum og mögulega fleiri skyldmennum. „Ég stal ekki einni einustu evru. Ég er ekki til rannsóknir en ef þeir senda mig fyrir dóm mun ég verja mig. Ég spurði páfann: hvers vegna ertu að gera mér þetta, fyrir framan allan heiminn?“ sagði Becciu. Fimm starfsmönnum Páfagarðs var vikið frá störfum í fyrra eftir að húsleit var gerð á skrifstofum þess í tengslum við rannsóknina á fjárfestingunum í London.
Páfagarður Trúmál Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Fleiri fréttir Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Sjá meira