200 þúsund króna sekt tólf dögum eftir bílprófið Sylvía Hall skrifar 17. október 2020 07:19 Lögreglan stöðvaði nokkra ökumenn í gær og í nótt. Vísir/Vlhelm
Sautján ára stúlka var stöðvuð á 148 kílómetra hraða á Miklubraut þar sem hámarkshraði er 80 kílómetrar á klukkustund og verður hún sektuð um 200 þúsund krónur vegna akstursins. Stúlkan hafði aðeins verið með ökuréttindi í tólf daga að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Málið hefur verið tilkynnt foreldrum stúlkunnar sem og barnavernd, en samkvæmt lögreglu má stúlkan vænta þess að verða svipt ökuréttindum. Þá var ökumaður handtekinn í Kópavogi þar sem hann reyndist vera undir áhrifum áfengis. Þá hafði ökumaðurinn einnig verið sviptur ökuréttindum en hann var látinn laus eftir sýnatöku. Tveir aðrir ökumenn voru stöðvaðir í gær, annar í Hlíðahverfi en hinn í Breiðholti. Annar þeirra hafði verið sviptur ökuréttindum en hinn aldrei öðlast slík, og var sá látinn halda för sinni áfram fótgangandi. Í Mjódd var óskað eftir aðstoð lögreglu þar sem maður í annarlegu ástandi ógnaði gestum og gangandi. Maðurinn er sagður hafa verið undir áhrifum áfengis og fíkniefna og yfirbugaði lögregla hann á vettvangi. Hann var vistaður í fangaklefa og bíður nú skýrslutöku samkvæmt upplýsingum lögreglu. Lögregla var einnig kölluð til í Kringlunni þar sem ölvaður einstaklingur var til vandræða á veitingastað. Var viðkomandi vísað út eftir að hann hafði gert upp reikning sinn.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Trump útilokar að bjóða sig fram aftur Erlent Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Jafnaðarmenn báru nauman sigur úr býtum Erlent Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Innlent Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Innlent Bjarni fundaði með Guterres Innlent Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Innlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Fleiri fréttir Óásættanlegt að vísa NPA-vandanum alfarið til sveitarfélaga Ánægður með frumvarp sjálfstæðismanna Bjarni fundaði með Guterres Tveggja bíla árekstur á Suðurlandsvegi Kom vini sínum til bjargar á fótboltaæfingu og 34. klukkustund Bakgarðshlaups Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Sjá meira