Haukur frábær í tapi og spennutryllir hjá Tryggva Anton Ingi Leifsson skrifar 21. október 2020 18:19 Haukur Helgi átti virkilega góðan leik í kvöld. Twitter-síða Andorra
Haukur Helgi Pálsson átti virkilega góðan leik fyrir Morabanc Andorra er liðið tapaði fyrir Lokomotiv Kuban Krasnodar á útivelli í Evrópudeildinni í körfubolta, 76-61. Rússarnir voru sterkari nær allan leikinn. Þeir tóku völdin í fyrsta leikhlutanum og voru 37-27 yfir í hálfleik. Að endingu varð munurinn svo fimmtán stig. Haukur Helgi var næst stigahæsti leikmaður Andorra í leiknum. Hann skoraði tólf stig, tók fjögur fráköst og gaf tvær stoðsendingar en Andorra hefur einungis unnið einn af fyrstu fjórum leikjunum í riðlinum. Í Meistaradeildinni var Tryggvi Snær Hlinason í baráttunni með Zaragoza er liðið vann eins stigs sigur á pólska liðinu Pszczólka Start Lublin, 86-85, á útivelli, eftir að hafa verið þremur stigum undir er ellefu sekúndur voru eftir. Tryggvi komst ekki á blað en hann tók fimm fráköst og gaf eina stoðsendingu. Þetta var fyrsti leikur beggja liða í Meistaradeildinni en í riðlinum eru einnig Nizhny Novgorod og Szombathely.
Körfubolti Mest lesið Mátti ekki kaupa íbúð Babe Ruth Sport Segir dóttur sína hafa gert mistök með því að velja íslenska landsliðið Fótbolti Dagskráin í dag: Golf og aftur golf Sport Glódís: „Gríðarlega erfitt að sitja með þá tilfinningu eftir mót“ Sport Skýrsla Arons: Stórum spurningum þarf að svara Fótbolti Wenger á allt annarri skoðun en Klopp Fótbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Dagný: Veit ekkert hvað ég er að fara að gera Fótbolti „Það var köld tuska í andlitið“ Fótbolti „Þegar við spilum svona þá uppskerum við yfirleitt“ Fótbolti Fleiri fréttir Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Sjá meira