Helgi Valur ætlar að sanna að allt er fertugum fært Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 9. nóvember 2020 22:16 Helgi Valur mun klæðast appelsínugulu næsta sumar. Vísir/Vilhelm
Helgi Valur Daníelsson, fyrrum atvinnu- og landsliðsmaður í knattspyrnu, skrifaði í dag undir eins árs samning við uppeldisfélag sitt Fylki. Helgi Valur hefur verið frá eftir að hafa meiðst illa í leik gegn Gróttu fyrr í sumar en hefur nú ákveðið að taka slaginn með Fylki í Pepsi Max deildinni næsta sumar. Frá þessu greindi Fylkir á samfélagsmiðlum sínum í dag. Helgi Valur spilar áfram Helgi Valur Daníelsson skrifaði í dag undir nýjan samning við Fylki. Helgi sem er fæddur...Posted by Íþróttafélagið Fylkir on Monday, November 9, 2020 Hinn 39 ára gamli Helgi Valur mun fagna fertugsafmæli sínu næsta sumar er deildin ætti að vera í hvað hæstum hæðum. Fyrir tímabilið í ár ræddi Vísi við Helga Val enda var hann elsti útileikmaður deildarinnar. Hann hafði verið hættur í þrjú ár og vann við nýja jáeindaskannann á Landspítalanum þegar hann ákvað allt í einu að taka fram skóna með Fylki fyrir sumarið 2018. Var hann alger lykilmaður í liði Fylkis sumarið 2018 sem og í sumar eða allt fram að meiðslunum. Var hann til að mynda valinn í lið ársins hjá Pepsi Max Mörkunum og valinn besti leikmaður Fylkis síðasta sumar. „Það hefur verið frábært að fylgjast með Helga eftir að hann kom aftur í Fylki fyrir tímabilið 2018. Hann átti frábært tímabil [20 leikir, fjögur mörk] og byrjaði þetta tímabil vel en meiddist svo illa snemma móts þegar hann fjórbrotnaði á fæti og spilaði því aðeins þrjá leiki í Pepsi Max deildinni þetta árið,“ sagir í tilkynningu Fylkis. Helgi Valur hefur þar með blásið á spár flestra sem héldu að hann myndi leggja skóna á hilluna eftir meiðslin. Var hann farinn að æfa að nýju með Fylki áður en Íslandsmótið var blásið af nú á dögunum. Þar endaði Fylkir í 6. sæti. Eru þetta gleðitíðindi fyrir Fylkismenn en Ólafur Ingi Skúlason, einn af miðjumönnum liðsins, sagði að hann væri svo gott sem búinn að leggja skóna á hilluna í viðtali nýverið. Fylkir heldur því allavega öðrum af reynslumeiri leikmönnum liðsins fyrir næstu leiktið.
Fótbolti Íslenski boltinn Pepsi Max-deild karla Fylkir Mest lesið Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira