Skoðun

Eigum við að upp­lifa ævin­týrin saman?

Erna Reynisdóttir skrifar

Það er ekkert launungamál að mörg erum við orðin háð símunum okkar, bæði til vinnu og til afþreyingar. Ég er engin undantekning á því. Mér hættir til að heyra ekki þegar við mig er talað og sjá ekki það sem í kringum mig er. Og á hverjum bitnar það? Jú, nánustu fjölskyldumeðlimum og hundinum sem berst um athygli við þetta litla tæki sem ég stari á tímunum saman. 

En þegar nánasta fjölskylda samanstendur af börnum? Jafnvel kornabörnum? Gæti verið að símarnir séu farnir að hafa áhrif á tengslamyndum foreldra og barna? Um það hafa verið gerðar rannsóknir og svarið er já. Því miður. Og það er grafalvarlegt mál því eins og við öll vitum þá þurfa börn meira en mat, föt og nýja bleyju. Þau þurfa umhyggju, athygli, augnsamband og snertingu til að ná að þroskast tilfinningalega og félagslega. 

Eru þá snjallsímar verkfæri skrattans, skaðvaldar alls og ógn við samfélagið? Nei, það vil ég ekki meina. Enda þótt símar og öppin í þeim geti verið tímaþjófar þá geta þeir líka verið tímasparandi og létt okkur lífið á margan hátt. Við þurfum bara að vera meðvituð um að við stjórnum þessum tækjum en þau ekki okkur. 

Barnaheill standa í þriðja sinn fyrir símalausum sunnudegi núna á sunnudaginn 15. nóvember. Tilgangurinn með deginum er að vekja fólk til umhugsunar um símanotkun og áhrif hennar á tengslamyndun í fjölskyldum. Dagurinn getur líka verið ágætis byrjun á að breyta hegðun og taka frá tíma, hvort sem það er sunnudagur eða ekki, til að vera í raun til staðar fyrir sig og sína. Við hjá Barnaheillum höfum fengið töluverð viðbrögð við þessu framtaki okkar í gegnum tíðina og markverðust þóttu okkur viðbrögð barnanna. Þau tjáðu sig um að þau væru virkilega ánægð með daginn og sögðust vilja hafa hann oftar. Það segir okkur fullorðna fólkinu ýmislegt. Taktu þátt í símalausum sunnudegi. Upplifum ævintýri saman. Skráning er á www.simalaus.is

Höfundur er framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi.




Skoðun

Sjá meira


×