Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson og Anna Rún Tryggvadóttir skrifa 27. október 2026 11:01 Undanfarin ár hefur Reykjavíkurborg átt í samstarfi við lóðarhafa á uppbyggingasvæðum. Þar hefur verið sett af stað mikilvægt verkefni sem byggir á því að hlutfallslegri fjárhæð framkvæmda og uppbyggingar sé varið til listsköpunar. Þetta samstarf er hlekkur í að tryggja gæði og gott umhverfi í borginni og auka sýnileika myndlistar í borgarlandslaginu. Fyrir um ári síðan var haldin samkeppni um slíkt listaverk á Orkureit við Grensásveg. Í ferlinu voru fimm listamenn valdir til að fullklára tillögu sem lögð var fyrir dómnefnd. Samkeppnin fór fram samkvæmt samkeppnislýsingu sem unnin var af Reykjavíkurborg og hlaut samþykki stjórnar Sambands íslenskra myndlistarmanna, SÍM. Í kjölfar niðurstöðu ferlisins sköpuðust umræður um framkvæmdina þar sem aðilar málsins urðu sammála um að formsatriði hefði ekki verið fullnægt; sami fulltrúi verkkaupa sat bæði í forvalsnefnd og dómnefnd en slíkt samræmist ekki samkeppnisreglum SÍM. Reykjavíkurborg hefur viðurkennt þetta og beðið listamenn sem tóku þátt afsökunar. SÍM hefur sömuleiðis viðurkennt að trúnaðarmanni hafi á sínum tíma yfirsést að benda á að þetta frávik. Reykjavíkurborg og SÍM þykir þetta miður, hafa tekið málið til sín og vinna að því að skerpa á og bæta verkferla við samkeppnir. Í samtölum við þátttakendur í samkeppninni um Orkureit kom fram gagnrýni á aðra þætti framkvæmdarinnar, einkum þá staðreynd að ekki sé ljóst hvaða ferli taki á umkvörtunum listamanna. Þá þótti gæta innbyrðis ósamræmis í upplýsingagjöf af hálfu borgarinnar hvað varðar tilhögun samkvæmt samkeppnislýsingu þar sem vísað var til að farið yrði að samkeppnisreglum SÍM. Samhliða því að þetta mikilvæga verkefni festir sig í sessi yfirfer Reykjavíkurborg þá verkferla sem stuðst hefur verið við í samkeppnum er varða listsköpun á uppbyggingarsvæðum. SÍM hefur einnig lagst í úttekt á samkeppnisreglum sínum til þess þær verði betur til þess fallnar að takast á við mál af þessu tagi í framtíðinni. Traust á samkeppnisferlum byggir á því að reglur séu virtar og að allir þátttakendur sitji við sama borð. Fulltrúar Reykjavíkurborgar og SÍM þakka fyrir opinskáa og heiðarlega umræðu við þátttakendur. Almenningi er bent á að fylgjast með fjölgun listaverka í almannarými á uppbyggingarsvæðum. Yfirlit yfir þau verkefni sem þegar hafa hlotið brautargengi má finna á vefsvæði Reykjavíkurborgar undir “listaverk á uppbyggingasvæðum.” Nú þegar hafa fjölmörg ný verk orðið til og fleiri munu líta dagsins ljós á næstunni. Markús Þór er safnstjóri Listasafns Reykjavíkur. Anna Rún er formaður SÍM. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Skoðun Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Sjá meira
Undanfarin ár hefur Reykjavíkurborg átt í samstarfi við lóðarhafa á uppbyggingasvæðum. Þar hefur verið sett af stað mikilvægt verkefni sem byggir á því að hlutfallslegri fjárhæð framkvæmda og uppbyggingar sé varið til listsköpunar. Þetta samstarf er hlekkur í að tryggja gæði og gott umhverfi í borginni og auka sýnileika myndlistar í borgarlandslaginu. Fyrir um ári síðan var haldin samkeppni um slíkt listaverk á Orkureit við Grensásveg. Í ferlinu voru fimm listamenn valdir til að fullklára tillögu sem lögð var fyrir dómnefnd. Samkeppnin fór fram samkvæmt samkeppnislýsingu sem unnin var af Reykjavíkurborg og hlaut samþykki stjórnar Sambands íslenskra myndlistarmanna, SÍM. Í kjölfar niðurstöðu ferlisins sköpuðust umræður um framkvæmdina þar sem aðilar málsins urðu sammála um að formsatriði hefði ekki verið fullnægt; sami fulltrúi verkkaupa sat bæði í forvalsnefnd og dómnefnd en slíkt samræmist ekki samkeppnisreglum SÍM. Reykjavíkurborg hefur viðurkennt þetta og beðið listamenn sem tóku þátt afsökunar. SÍM hefur sömuleiðis viðurkennt að trúnaðarmanni hafi á sínum tíma yfirsést að benda á að þetta frávik. Reykjavíkurborg og SÍM þykir þetta miður, hafa tekið málið til sín og vinna að því að skerpa á og bæta verkferla við samkeppnir. Í samtölum við þátttakendur í samkeppninni um Orkureit kom fram gagnrýni á aðra þætti framkvæmdarinnar, einkum þá staðreynd að ekki sé ljóst hvaða ferli taki á umkvörtunum listamanna. Þá þótti gæta innbyrðis ósamræmis í upplýsingagjöf af hálfu borgarinnar hvað varðar tilhögun samkvæmt samkeppnislýsingu þar sem vísað var til að farið yrði að samkeppnisreglum SÍM. Samhliða því að þetta mikilvæga verkefni festir sig í sessi yfirfer Reykjavíkurborg þá verkferla sem stuðst hefur verið við í samkeppnum er varða listsköpun á uppbyggingarsvæðum. SÍM hefur einnig lagst í úttekt á samkeppnisreglum sínum til þess þær verði betur til þess fallnar að takast á við mál af þessu tagi í framtíðinni. Traust á samkeppnisferlum byggir á því að reglur séu virtar og að allir þátttakendur sitji við sama borð. Fulltrúar Reykjavíkurborgar og SÍM þakka fyrir opinskáa og heiðarlega umræðu við þátttakendur. Almenningi er bent á að fylgjast með fjölgun listaverka í almannarými á uppbyggingarsvæðum. Yfirlit yfir þau verkefni sem þegar hafa hlotið brautargengi má finna á vefsvæði Reykjavíkurborgar undir “listaverk á uppbyggingasvæðum.” Nú þegar hafa fjölmörg ný verk orðið til og fleiri munu líta dagsins ljós á næstunni. Markús Þór er safnstjóri Listasafns Reykjavíkur. Anna Rún er formaður SÍM.
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun