Skoðun

Hafnar­fjörður selur orku­inn­viði sína

Sigurður Þ. Ragnarsson skrifar

Nú hefur meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks fórnað á altari skammtímagróða, almannahagsmunum íbúa Hafnarfjarðar með sölunni á hlut bæjarins í HS-veitum. Hér er verið að selja síðasta hluta Rafveitu Hafnarfjarðar sem stofnuð var 1938 eftir botnlausa vinnu framsækinna Hafnfirðinga sem rekja má allt til ársins 1904 eða í 116 ár með frumkvöðlastarfsemi Jóhannesar Reykdal.

Hlutur bæjarins í HS-veitum hefur hefur hækkað um 2 milljarða síðan 2013. Stórkostleg verkefni bíða þessa fyrirtækis handan hornsins. Rafvæðing hafna á Reykjanesskaga, uppbygging vetnisiðnaðar með tilheyrandi hafnaraðstöðu, fiskeldi í Helguvík og margt fleira. Þetta mun án nokkurs vafa auka verðmæti fyrirtækisins og þar með hlutar Hafnarfjarðar á komandi misserum og árum. Það alvarlega er að hvergi í verðmati sérfræðinga á verðmæti hlutarins/fyrirtækisins var þessum tækifærum velt upp.

Uppgjör vegna Covid er eitthvað sem leysa verður á stærri vettvangi en í Hafnarfirði, og það er víða ekki á færi einstakra sveitarfélaga að leysa það tekjuhrun sem Covid 19 hefur valdið. Það hrun sem orðið hefur á rekstrarmódelum sveitarfélaga hefur ekkert með Hafnarfjörð einan að gera. Lánalínur frá ríki/Seðlabanka án vaxta og afborgana í 3-4 ár þurfa að koma til. Að afloknu Covid liggur svo fyrir hvort hægt sé að stilla upp sjálfbæru rekstrarmódeli sveitarfélaga m.t.t. tekjustofna þeirra. Þegar þeirri yfirferð er lokið fyrir Hafnarfjörð, þá fyrst hefði verið tímabært að taka yfirvegaða ákvörðun um sjálfbærni sveitarfélagsins og hvort neyðin myndi reka menn til sölu á eignum bæjarins. En núverandi meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hófu vegferðina með sölu á hlut sínum í hinu öfluga fyrirtæki HS-veitum áður en niðurstaða var fengin með aðkomu ríkisvaldsins eða hver hin endanlegu áhrif Covid 19 verða á bæjarsjóð. Hvað er það næst hjá meirihlutanum? Er það sala á Hafnarfjarðarhöfn, sala á jarðhitaréttindum í Krísuvík, nú eða að selja Krísuvíkursvæðið allt til Grindvíkinga sem bíða á hliðarlínunni eftir að fá að kaupa perluna Krísuvík.

Helst á alls ekki að taka ákvarðanir í óstöðugu umhverfi líkt og meirihlutinn í Hafnarfirði hefur nú gert.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Hafnarfirði hafa með ákvörðun sinni fórnað á altari skammtímagróða almannahagsmunum íbúa Hafnarfjarðar. Langtímahagsmunum er kastað fyrir róða. Rafveita Hafnarfjarðar heyrir nú endanlega sögunni til. Dagurinn 28. október 2020 er því hinn dapri dagur í sögu Hafnarfjarðar.

Höfundur er bæjarfulltrúi Miðflokksins í Hafnarfirði.




Skoðun

Sjá meira


×