Viðskipti innlent

Býður hærri vexti á innlánum í nýju appi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hilmar Kristinsson er verkefnastjóri yfir fjártækni hjá Kviku banka.
Hilmar Kristinsson er verkefnastjóri yfir fjártækni hjá Kviku banka. Vísir/Vilhelm

Auður, fjármálaþjónusta Kviku, hefur gefið út app fyrir viðskiptavini sína og tvo nýja innlánsreikninga með hæstu mögulegu innlánsvöxtum í sínum flokkum, samkvæmt samanburðarsíðunni Aurbjörgu.

Nýju reikningarnir eru annars vegar með sex mánaða binditíma og 1,55% vöxtum og hins vegar með 12 mánaða binditíma og 1,75% vöxtum. Um er að ræða fastvaxtareikninga sem þýðir að þeir vextir sem eru í gildi á stofndegi reiknings gilda út allan binditímann.

Til samanburðar bjóða aðrar innlendar bankastofnanir upp á sambærilega reikninga með vöxtum að meðaltali 1,10% fyrir 6 mánaða reikninga og 1,28% fyrir tólf mánaða reikninga og í sumum tilfellum er gerð krafa um lágmarksinnstæðu.

Auður hóf að bjóða upp á innlánsreikninga á netinu í byrjun síðasta árs. Í tilkynningu frá Auði segir að viðtökurnar hafi verið slíkar að á fyrsta mánuðinum höfðu á fimmta þúsund viðskiptavina stofnað innlánsreikninga hjá Auði. Viðskiptavinum hafi fjölgað ört síðan.

Með nýju reikningunum er hægt að velja um fjórar innlánaleiðir hjá Auði. Auk nýju reikninganna er óbundinn sparnaðarreikningur sem ber 1% vexti og reikningur bundinn til 3 mánaða með 1,35% vöxtum.

„Það er einnig afar ánægjulegt að tilkynna að ekki er lengur gerð krafa um 250 þúsund króna lágmarksinnstæðu svo nú geta allir notið hæstu mögulegu innlánsvaxta Auðar. Auður er eftir sem áður besti kosturinn fyrir fólk sem vill fá hæstu mögulegu innlánsvexti á sparnaðinn sinn,“ segir Hilmar Kristinsson, verkefnastjóri yfir fjártækni hjá Kviku.


Tengdar fréttir

Stýrivextir lækka óvænt

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 0,75%






Fleiri fréttir

Sjá meira


×