Viðskipti innlent

Dökkar samdráttartölur áfram í kortunum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
Ferðamenn eru sjaldgæf sjón þessi misserin, sem vegur þyngst í tölum Hagstofunnar.
Ferðamenn eru sjaldgæf sjón þessi misserin, sem vegur þyngst í tölum Hagstofunnar. Vísir/Vilhelm Gunnarsson

Hvergi er meiri samdráttur í Evrópu en á Íslandi, samkvæmt þjóðhagsreikningum Hagstofunnar. Hagfræðingur segir fyrirséð að tölurnar verði áfram dökkar.

Áætlað er að landsframleiðslan hafi dregist saman um 10,4 prósent að raungildi á þriðja ársfjórðungi 2020, borið saman við sama tímabil í fyrra. Samdráttinn má rekja til utanríkisviðskipta og vegur ferðaþjónustan þar þyngst, en hún dróst saman um 77 prósent. Um er að ræða mesta samdrátt í Evrópu, af þeim löndum sem hafa birt áætlanir sínar um þróun landsframleiðslu. Snorri Jakobsson hagfræðingur segir varasamt að horfa of mikið í tölur einstakra ársfjórðunga.

Snorri Jakobsson hagfræðingur.Vísir/Baldur Hrafnkell Jónsson

„Það var náttúrulega gríðarlega mikið af ferðamönnum hér í fyrra og svo förum við næstum því í núllið, sem kemur mjög sterkt fram í tölunum. En þetta er allt saman í raun og veru stóra planið sem var lagt upp, það var að reyna að keyra hagkerfið áfram á sem mestum krafti með einkaneyslu og fjárfestingu, hvetja eins mikið til hennar eins og hægt væri,“ segir Snorri.

Það muni hins vegar koma að skuldadögum.

„En svo á einhverjum tímapunkti þá þurfum við að greiða það til baka, til að koma í veg fyrir fjölda atvinnuleysi og það væri náttúrulega bara skelfilegt eins og seðlabankastjóri hefur bent á, ef byggingariðnaðurinn færi að hrynja líka eða aðrir atvinnuvegir.“

Tölurnar komi ekki á óvart. „Við sjáum skýrt í þessum tölum, þessa stefnu sem stjórnvöld hafa tekið að það er að hvetja sem mest til neyslu og fólk neyti sem mest hérna heima, eyði sem mest og haldi ekki að sér höndum. Þá værum við bara með feitan mínus í vöruskiptunum.“

Ólíklegt sé að breytingar verði á næstu tölum, þó seinni hluti næsta árs verði að vonum bjartari.

„Ég held að fjórði ársfjórðungur verði jafn dökkur og svartur eins og annar og þriðji - fyrsti ársfjórðungur verði það kannski líka, en við ættum að sjá betri tölur á öðrum þriðja og fjórða næsta árs,“ segir Snorri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×