Þakplötur fuku af húsi í Mosfellsbæ Atli Ísleifsson skrifar 4. desember 2020 07:28 Mikið hvassviðri var á höfuðborginni í gærkvöldi og í nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu var tilkynnt um að þakplötur væru að fjúka af húsi í Mosfellsbæ í hvassviðrinu skömmu eftir klukkan 18 í gærkvöldi.
Frá þessu segir í tilkynningu frá lögreglu. Þar segir að mögulega hafi orðið skemmdir á bílum. Þar segir að aðili hafi mætt á vettvang til að tryggja ástand. Þjófnaður í verslun í 104 Um kvöldmatarleytið var svo tilkynnt um þjófnað í verslun í hverfi 104 í Reykjavík. Hafi þrír einstaklingar komið inn í verslunina, tveir keypt vörur en sá þriðji farið út með vörur sem hann hafði ekki greitt fyrir. „Maðurinn var með varninginn innan klæða og öryggishlið gaf hljóðmerki er hann fór út. Starfsmaður fór á eftir manninum og náði hluta varningsins en maðurinn komst undan með félögum sínum í bifreið sem beið fyrir utan. Málið er í rannsókn,“ segir í tilkynningunni. Reyndi að stela lambahryggjum Einnig segir frá því að maður hafi reynt að stela tveimur lambahryggjum úr verslun á Seltjarnarnesi um klukkan 19, en hann hafði sett kjötið undir úlpu sína en misst þegar hann yfirgaf verslunina svo að upp komst. Upp úr klukkan 23 var kona í annarlegu ástandi handtekin í Garðabæ grunuð um eignaspjöll. Var hún vistuð fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.
Lögreglumál Mosfellsbær Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira