Órökstuddar fullyrðingar um að veiran sé manngerð Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 5. maí 2020 20:00 Það er að minnsta kosti afar ólíklegt að veiran hafi verið búin til á þessari tilraunastofu, enda er hún í Keníu. EPA/Daniel Irungu
Kínverjar segja ummæli Bandaríkjastjórnar um að kórónuveiran hafi verið sköpuð á tilraunastofu í Wuhan-borg út í hött. Bandaríkjamenn hafa skotið sífellt fastar á Kínverja undanfarnar vikur eftir því sem staðan versnar þar í landi. Washington Post greindi frá því að stjórn Donalds Trump forseta vildi að Kínverjar greiddu bætur vegna veirunnar. Þá vöktu ummæli Mikes Pompeo utanríkisraðherra, um að veiran væri manngerð, mikla athygli. „Ég get sagt þér það að það eru mikil sönnunargögn fyrir því að þessi veira komi frá tilraunastofu í Wuhan,“ sagði Pompeo við Mörthu Raddatz, fréttamann ABC. Kínverjar, WHO og leyniþjónustur ósammála Þessu tóku Kínverjar ekki vel. Ríkismiðillinn Global Times birti ritstjórnargrein þar sem Pompeo var sagður afvegaleiða almenning með grundvallarlausum ummælum sínum. Og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur ekki fengið neinar upplýsingar sem benda til þess að veiran sé manngerð. „Við einblínum á þau gögn sem við höfum og þau benda öll til þess að veiran sé náttúruleg,“ sagði Michael Ryan, yfirmaður krísustjórnunar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Þá hefur svokallað Five Eyes-leyniþjónustusamstarf Bretlands, Kanada, Ástralíu, Nýja-Sjálands og Bandararíkjanna ekki fundið neitt sem bendir til þess að veiran sé manngerð.
Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Kína Bandaríkin Donald Trump Mest lesið „Ömurlegasta sem fólk getur fengið sem bólfélaga“ Innlent Ætlar ekki í formanninn og varar við eftirlíkingum Innlent Átti að endast í fimmtán ár en hrundi eftir tvö Innlent Ráðherra segir dóm um Hvammsvirkjun áhyggjuefni Innlent Segir nafnlausa konu fara með rangt mál um bróður hans Innlent Bjóst ekki við greiðslum frá Alþingi Innlent Ákærður fyrir að drepa móður sína Innlent Hamas og Ísrael komast að samkomulagi um vopnahlé Erlent Stjórnsýslan í kringum sjókvíaeldi sé gölluð Innlent Kom að lokuðum dyrum örfáum dögum eftir að hafa tjáð sig í fjölmiðlum Innlent Fleiri fréttir Hamas og Ísrael komast að samkomulagi um vopnahlé Sakar Rússa um skipulagningu hryðjuverka Óttast áhrif orðræðu Trumps á fjárfesta Mál horfinna systra skekur Skotland Gerðu umfangsmikla árás á vesturhluta Úkraínu Bjargaði túristum í vanda og laxeldi í Seyðisfirði mótmælt Bönnuðu bardaga nýnasista og gengisfélaga í Helsinki Tvö geimför á leið til tunglsins Reyna að banna Bandidos-mótorhjólagengið í Danmörku 97 árásir á „örugga svæðið“ á Gasa Forseti Suður-Kóreu handtekinn í mikilli aðgerð Minni vindur í LA en óttast hafði verið Vilja nota fleiri aðferðir en bara BMI til að meta offitu Sat fyrir svörum vegna áfengisdrykkju og viðhorfa til kvenhermanna Greiddi aðila sem þóttist vera Brad Pitt tugi milljóna Bræðurnir Tate lausir úr stofufangelsi, aftur Hamas-liðar samþykktu drög að friðarsamkomulagi Að minnsta kosti hundrað hafa dáið ofan í lokaðri námu Lögðu kapp á að senda Pútín viðvörun vegna eldsprengja Eldar sagðir loga víða í Rússlandi eftir árásir Flokkur Farage fast á hæla Verkamannaflokksins Segist ítrekað hafa komið í veg fyrir frið á Gasa Segir að Trump hefði verið sakfelldur Þessi troða upp á innsetningarathöfn Trump Búa sig undir það versta Hyggjast leggja 100 prósent skatt á eignakaup útlendinga Bloomberg segir viðræður hafa átt sér stað um sölu TikTok til Musk Biden segir vopnahlésviðræður á lokametrunum Að minnsta kosti 24 látnir Máluðu gröf Charles Darwin í mótmælaskyni Sjá meira